25/03/2026 • Björn Gunnar Birgisson
2026: Nýjar áskoranir á tölvumarkaði
Framundan eru óvenjulegir tímar, þar sem spennandi tækniframfarir fara saman við óumflýjanlegar verðhækkanir. Nú er því mikilvægara en áður að skipuleggja innkaup vel og sýna þolinmæði.

Mikil eftirspurn eftir vinnsluminni og geymslumiðlum, drifin áfram af gervigreind, veldur nú verðhækkunum, vöruskorti og færri valkostum. Ástand í Miðausturlöndum bætir þar ofan á og getur hamlað framleiðslu vegna skorts á helíum, olíu og gasi. Aðstæður eru flóknari en á COVID-tímabilinu og því er mikilvægt að skipuleggja innkaup vel og sýna þolinmæði.
Við hjá Ofar erum vel undirbúin
Við hjá Ofar höfum undanfarna sex mánuði undirbúið okkur vel í samstarfi við Lenovo og tryggt viðskiptavinum stöðugt vöruframboð. Við erum jafnframt tilbúin að mæta þeim áskorunum sem framundan eru.
Ef staðan á heimsmarkaði heldur áfram að versna mun þó þurfa að forgangsraða eftir mikilvægi til að tryggja að lykilstofnanir og fyrirtæki haldi starfsemi sinni gangandi snurðulaust. Samhliða því má búast við verðhækkunum af nýrri stærðargráðu.
Framleiðsla á plasti, íhlutum, minniseiningum og örgjörvum er í uppnámi. Það mun leiða til þess að einfaldari vörur verða síður fáanlegar, smærri fyrirtæki heltast úr lestinni og rótgróin vörumerki hverfa af markaði. Einnig mun hægja á vöruflutningum og kostnaður hækka.

Gott vöruúrval þrátt fyrir allt
Við erum almennt með um 50–60 mismunandi ThinkPad fartölvur á lager og ættum því að geta mætt þörfum flestra notenda. Þarfir eru þó að þróast, þar sem gervigreind gegnir sífellt stærra hlutverki og hluti vinnslunnar færist yfir á tölvuna sjálfa í stað skýjalausna. Þetta kallar á öflugri búnað, sérstaklega fyrir þekkingarnotendur.
Borðtölvur hafa verið mikið endurnýjaðar undanfarið vegna útleiðingar á Windows 10 og erum við með gott úrval á verði frá 116.900 kr. með vsk. Enn er því hægt að gera góð kaup og losa um eldri vélar sem eru komnar á síðasta snúning.
Í vinnustöðvum (Workstation) fyrir kröfuharða notendur, hönnuði og sérfræðinga höfum við verið leiðandi á markaði. Þær eru nú öflugri en áður með nýjustu Blackwell skjákortunum frá NVIDIA. Nú er rétti tíminn til að endurnýja og auka afköst, enda fyrirsjáanlegur skortur framundan með tilheyrandi verðhækkunum.

Hvernig eiga fyrirtæki að bregðast við erfiðum markaðsaðstæðum?
Það er lykilatriði að velja samstarfsaðila sem ræður við þessar áskoranir. Jafnframt þarf að skipuleggja innkaup vel, eiga varabúnað á lager og eiga reglulegt samtal um stöðuna, enda getur hún breyst á augabragði. Skortur getur fljótt orðið að verulegum kostnaði ef rekstur fer að hiksta og úrræði eru takmörkuð.
Vöruhúsið okkar er fullt af góðum vörum og nú er rétti tíminn til að uppfæra búnað fyrir sumarfrí og leggja inn pantanir fyrir næstu mánuði. Það eina sem er víst er að hlutirnir breytast hratt, og það getur verið dýrt að bíða.

Hvað gerist næst?
Sem betur fer heldur lífið áfram. Brátt kynnum við nýjar ThinkPad fartölvur með auknum afköstum, nýrri örgjörvatækni, öflugum gervigreindarlausnum og snjöllum leiðum til að lækka rekstrarkostnað.
Viðgerðir? Hugsaðu þjónustustopp í Formula 1, meira um það í vor :)

Vantar þig þjónustu í efsta stigi?
Senda fyrirspurn
Frá ráðgjöf að pöntun, frá afhendingu til uppsetningar. Sérfræðingar okkar eru hér fyrir þig þegar kemur að kaupum á tölvubúnaði og tæknilausnum.

Höfundur bloggs
Björn Gunnar Birgisson
Vörustjóri Lenovo
Deila bloggi