05/03/2026

Ókeypis DaVinci Resolve námskeið hjá Blackmagic

Blackmagic Design býður upp á ókeypis netnámskeið í DaVinci Resolve þar sem farið er yfir helstu verkfæri forritsins, allt frá klippingu til litaleiðréttingar, brelluvinnu og hljóðvinnslu.

Hvað er DaVinci Resolve?

DaVinci Resolve er eina forritið sem sameinar alla hluta alvöru eftirvinnslu: klippingu, litaleiðréttingu, brellur og hreyfigrafík og eftirvinnslu hljóðs.

Þessi námskeið eru bæði ætluð byrjendum og reyndari notendum DaVinci Resolve og eru hönnuð til að opna augu og auka þekkingu þátttakenda fyrir þeim möguleikum sem þetta magnaða forrit hefur upp á að bjóða.

Námskeiðin fara fram á ensku og eru ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig.

Námskeiðin

Klipping í DaVinci Resolve fyrir nýja notendur

13. mars | Föstudagur kl. 14:00 – 16:00 GMT

Komdu þér betur inn í klippingu í DaVinci Resolve. Edit síðan er hönnuð til að vera einföld og auðskiljanleg fyrir nýja notendur en samt nógu öflug til að veita atvinnu klippurum þau verkfæri sem þeir þurfa.

Skráðu þig á námskeiðið

Klipping í DaVinci Resolve fyrir lengra komna

26. mars | Fimmtudagur kl. 14:00 – 16:00 GMT

Edit síðan býður upp á fjölbreytt úrval eiginleika sem veita þér fulla skapandi stjórn á öllum þáttum vinnu þinnar.

Lærðu meðal annars að vinna með multi cam, mynd í mynd og fleiri háþróuð verkfæri.

Skráðu þig á námskeiðið

Hljóðvinnsla í DaVinci Resolve

27. mars | Föstudagur kl. 14:00 – 16:00 GMT

Fairlight er öflugt hljóðvinnsluumhverfi sem er fullkomlega samþætt myndvinnslunni í DaVinci Resolve.

Þetta gerir þér kleift að skipta á milli hljóðvinnslu og myndvinnslu með einum smelli.

Skráðu þig á námskeiðið

Litaleiðrétting í DaVinci Resolve

9. apríl | Fimmtudagur kl. 14:00 – 16:00 GMT

Lærðu hvernig þú nýtir helstu litaleiðréttingartól DaVinci Resolve til að ná betri myndgæðum og nákvæmari stjórn á litum og kontrasti.

Skráðu þig á námskeiðið

Creative Color í DaVinci Resolve

10. apríl | Föstudagur kl. 14:00 – 16:00 GMT

Í þessu námskeiði verður farið yfir skapandi litavinnslu og tæknileg verkfæri sem hjálpa þér að vinna hraðar og skila myndefni í hæstu mögulegu gæðum.

Skráðu þig á námskeiðið