14/11/2025

Fyrirlestur með Ara Magg: Myndaveisla

Fjölmennt var á viðburð á vegum Ljósmyndarafélags Íslands í samstarfi við Canon og Ofar.

Um 120 manns lögðu leið sína í Ofar þegar ljósmyndarinn Ari Magg veitti frábæra innsýn inn í síðustu 5 ár ferils síns. Um var að ræða viðburð á vegum Ljósmyndarafélags Íslands í samstarfi við Canon og Ofar.

Á fyrirlestrinum sýndi Ari ljósmyndir og vídeó úr nýlegum verkefnum auk þess sem hann sýndi hvernig hann fer að því að skapa spennandi myndheim fyrir fjölbreyttan hóp viðskiptavina sinna.

Við þökkum Ara fyrir magnaðan fyrirlestur og öllum þeim sem mættu á viðburðinn.

Myndaveisla

Ljósmyndarafélag Íslands, Canon og Ofar vilja þakka öllum kærlega fyrir komuna á viðburðinn með Ara Magg sem var haldinn í Borgartúni 37, 12. nóvember.

Canon myndavélar

Þegar þú myndar þína sögu, hvort sem er á ljósmynd eða vídeó, þá viltu að útkoman sé framúrskarandi. 

Deila frétt