28/03/2025
Víkingur sigurvegari Bose mótsins
Í ár var 13 skiptið sem Bose mótið var haldið og hefur án efa fest sig í sessi sem ómissandi hluti af undirbúningstímabili liðanna fyrir Bestu deildina.

Bose mótið er frábært æfingamót fyrir liðin og í ár var einnig tækifæri til að styðja við góðgerðarmál en allur aðgangseyrir úrslitaleiksins rann til Píeta samtakanna og Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, sem fengu aðgangseyrinn óskiptan afhentan í hálfleik úrslitaleiks.
Riðlakeppnin fór fram í nóvember og desember 2024, en ekki gafst tími til að klára úrslitaleikinn þar sem Evrópuævintýri Víkings hélt áfram og náði fram í febrúar. KR-ingar voru hins vegar óstöðvandi og kláruðu sinn riðil með fullt hús stiga. Úrslitaleiknum var því frestað og ákveðið var að spila hann í mars sem generalprufu fyrir bæði lið fyrir komandi keppnir í Bestu deildinni.
Úrslitaleikurinn á milli Víkings og KR var spilaður föstudaginn 28. mars 2025.
Fyrir þrettán árum gafst mér tækifæri til að tengja frábært vörumerki við íslenska knattspyrnu
Ágúst Þór Gylfason
•
Stofnandi Bose mótsins og vörustjóri hjá Ofar

Ágúst Þór Gylfason, stofnandi Bose mótsins og vörustjóri hjá Ofar
Úrslitaleikurinn 2025: Víkingur á móti KR
Úrslitaleikurinn á Bose móti 2025 var hápunktur þessarar spennandi móts. Á mótinu höfðu bæði lið sýnt mikinn styrk í riðlakeppninni, sem voru spilaðir á haustmánuðum 2024. KR höfðu sigrað sinn riðil með fullt húsi stiga, meðan Víkingur hafði einnig haft sterka frammistöðu í sínum riðli. Það var því mikil spenna í loftinu þegar liðin mættust í Hamingjunni. Það var bein útsending á Stöð 2 og leikurinn hafði mikla athygli á samfélagsmiðlum og meðal stuðningsmanna beggja félaga.
Niðurstaðan var sú að Víkingar eru Bose meistarar 2025 eftir 5-1 sigur. Leikurinn var hin fínasta skemmtun og ljóst er að Víkingar eru með sterkt lið sem gaman verður að fylgjast með í Bestu deildinni í sumar.




Bose S1 Pro+ bluetooth hátalari
Vinningur fyrir Bose meistara
Hentar vel fyrir aðstæður með allt að 150 manns og því geggjaður til þess að peppa hópinn fyrir leiki og byggja upp stemmningu. Með allt að 11 klst rafhlöðuendingu.
Bose QH Ultra
Verðlaun fyrir leikmann leiksins
Glæsileg 60 ára afmælisútgáfa og bestu heyrnartólin sem Bose hefur framleitt. Geggjuð til þess að peppa sig á leiðinni á völlinn eða zone-a sig inn fyrir leikinn með Goðsagnakennd noise cancelling tækni sem er öflugri en nokkru sinni, eyðir út umhverfishljóðum og veitir frið.
Bose Soundlink Flex II hátalari
Vinningur fyrir 3 bestu áhorfendurnar
Kraftmikill og frábær hátalari til þess að hlusta á fótboltaleiki eða fyrir fótbolta partýið. Fullkominn til að deila tónlist og góðum stundum hvar sem er. Með afar skörpu hljóði og djúpum bassa er hátalarinn nógu stór til að fylla rýmið, hvar sem þú ert
Sigurvegarar Bose mótsins í gegnum árin
Bose mótið hóf göngu sína sem æfingamót árið 2012. Áður höfðu aðeins tvö félög unnið mótið oftar en einu sinni, KR og Breiðablik. Víkingur bætist því við á þann lista þar sem þau unnu núna í annað skiptið.

Deila frétt


