09/11/2026

Innköllun á rafhlöðum í Bose S1 Pro og S1 Pro+ hátalara

Rafhlöðurnar fylgdu með hátölurunum en voru líka seldar stakar sem aukahlutir og varahlutir. Rafhlöður sem falla undir innköllunina geta ofhitnað og valdið eldhættu.

Innköllunin nær eingöngu til rafhlöðunnar en ekki hátalarans sjálfs. Viðskiptavinir fá nýja rafhlöðu sér að kostnaðarlausu.

Fylgdu skrefunum hér að neðan til að athuga hvort rafhlaðan í hátalaranum þínum falli undir innköllunina. Myndrænar leiðbeiningar um rafhlöðuskipti má finna neðar á síðunni.

  • Slökktu á hátalaranum og taktu hann úr sambandi.

  • Losaðu skrúfurnar tvær á botni hátalarans og fjarlægðu botnplötuna.

  • Dragðu rafhlöðuna út með togflipunum.

  • Finndu 17 stafa raðnúmerið sem er prentað undir strikamerkinu á miða rafhlöðunnar.

  • Ef fyrstu sex tölustafir raðnúmersins eru einhverjir af eftirfarandi fellur rafhlaðan undir innköllunina:

083723 · 078352 · 084105 · 078591 · 078592 · 084106 · 086409

Ef raðnúmerið byrjar ekki á neinu af þessu fellur rafhlaðan ekki undir innköllunina og óhætt er að nota hana áfram.

Athugið að sumir S1 Pro hátalarar voru seldir án rafhlöðu. Ef rafhlöðu frá Bose var bætt við síðar þarf að skoða hana á sama hátt.

Ef rafhlaðan þín fellur undir innköllunina

  • Hættu strax að nota hana og fjarlægðu hana úr hátalaranum.

  • Skrifaðu niður raðnúmerið á rafhlöðunni. Þú þarft það til að fá nýja rafhlöðu.

  • Skilaðu gömlu rafhlöðunni á Þjónustumiðstöð Ofar, Köllunarklettsvegi 8. Ekki henda henni í heimilissorp eða almenna endurvinnslu.

Þú getur haldið áfram að nota hátalarann án rafhlöðu, tengdan við rafmagn, þar til nýja rafhlaðan berst. Nýjar rafhlöður eru afhentar eftir því sem birgðir berast frá Bose, svo einhver bið getur orðið.

Hvernig á að skipta um rafhlöðuna?

Bose S1 Pro+

Bose S1 Pro

Við biðjumst velvirðingar á óþægindunum.

Hafa samband

Við aðstoðum þig með ánægju! Sendu okkur raðnúmer tækisins í gegnum formið hér að neðan og við sjáum til þess að þú fáir nýja rafhlöðu þér að kostnaðarlausu.

Deila frétt