19/12/2025

Tilkynning vegna lokunar 3G nets og áhrif á símtæki frá Motorola

Til að koma til móts við þig vegna þessara óþæginda viljum við hjá Ofar bjóða þér sérverð í farsímum frá Oppo.

Eins og fjallað hefur verið um í flestum fjölmiðlum eru að eiga sér breytingar á farsímanetum á Íslandi. Símafyrirtækin hér á landi standa nú frammi fyrir því að þurfa að loka alfarið á 3G símasambandið til að rýma fyrir uppbyggingu nýrra og hraðvirkari 4G og 5G neta. 

Þessar breytingar hafa því miður beinar afleiðingar á ákveðnar gerðir Motorola snjallsíma sem eru í notkun. 

Hver eru áhrifin? 

Því miður styðja sumar gerðir Motorola síma ekki tækni sem kallast Voice over LTE (VoLTE), eða símtöl yfir 4G net, hjá íslenskum símafyrirtækjum. 

Þegar 3G netið verður tekið úr sambandi munu þessi símtæki missa getuna til að hringja eða taka á móti símtölum (þó að netnotkun og SMS gætu haldið áfram að virka). Ástæðan er sú að síminn getur ekki sjálfkrafa fært símtalið yfir á 4G netið. 

Það verður áfram hægt að nota netsamskipti og t.d. WhatsApp til þess að hringja en ekki í venjuleg símanúmer eða t.d. aðgangshlið. 

Við skiljum að þetta eru mjög slæmar fréttir og viljum fullvissa þig um að okkur þykir þetta afar miður.

Hver ber ábyrgð á þessu? 

Þetta er tæknileg þróun sem er utan okkar áhrifasviðs.

Við höfum því miður engin áhrif á ákvörðun símafyrirtækjanna um lokun 3G netsins né á hönnun eða stillingar símtækja frá framleiðendum eins og Motorola.

Sérverð á OPPO farsímum í boði fyrir viðskiptavini

Til að koma til móts við viðskiptavini vegna þessara óþæginda, og þar sem tækið mun missa mikilvæga virkni, viljum við bjóða viðskiptavinum sérverð á nýjum farsímum frá OPPO.  Ofar er dreifingar- og þjónustuaðili fyrir OPPO á Íslandi.

Hvað er OPPO?

OPPO er alþjóðlegt tæknifyrirtæki, stofnað árið 2004, og er í dag meðal stærstu snjallsímaframleiðenda heims, jafnan í 3.–4. sæti á heimsvísu ásamt Samsung, Apple og Xiaomi.

OPPO er þekkt fyrir vandaða hönnun, framúrskarandi myndavélatækni, hraðhleðslu og stöðuga nýsköpun, og selur vörur sínar í yfir 60 löndum. Á Norðurlöndum er OPPO tiltölulega nýtt vörumerki, þar sem markviss uppbygging er í gangi með það markmið að bjóða hágæða snjallsíma sem raunhæfan valkost við rótgróin vörumerki á markaðnum.

Við bjóðum sérverð á eftirfarandi farsímum: 

Fylla þarf út neðangreindar upplýsingar og starfsmaður Ofar mun hafa samband við viðkomandi varðandi næstu skref.

Hvað þarft þú að gera? 

Fylltu út neðangreindar upplýsingar

Við munum fara yfir kaupferil þinn og staðfesta aldur tækisins til að reikna út verðmæti. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Við erum staðráðin í að veita þér bestu mögulegu þjónustu og finna farsæla lausn og óskum eftir góðum viðbrögðum við þessu erfiða máli. 

Deila frétt