23/02/2026
Móðurfélag Nova kaupir Ofar
Ofar og Nova verða rekin áfram í sitthvoru lagi, hvort undir sínu vörumerki.

Nova klúbburinn hf., móðurfélag Nova, hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Ofar ehf. af Skyggni Eignarhaldsfélagi hf. Kaupin marka tímamót í sögu Ofar og skapa traustan grunn fyrir áframhaldandi vöxt, nýsköpun og uppbyggingu á þjónustu félagsins.
Ofar mun áfram starfa sem sjálfstætt félag undir eigin vörumerki og með óbreyttu skipulagi. Dagleg starfsemi, þjónusta og samskipti við viðskiptavini haldast óbreytt, og allir gildandi samningar halda fullu gildi sínu.
Viðskiptavinir og samstarfsaðilar geta því treyst því að þjónustustig og skuldbindingar Ofar standi óbreyttar.
Markmið kaupanna er að styrkja enn frekar þá þjónustu og lausnir sem Ofar býður upp á, auka slagkraft félagsins á markaði og skapa ný tækifæri til þróunar og samstarfs. Með baklandi Nova klúbbsins opnast jafnframt aukin tækifæri til fjárfestinga, innviðauppbyggingar og nýrra verkefna sem munu styðja við framtíðarsýn Ofar.

Þessi breyting er afar jákvæð fyrir Ofar. Félagið heldur fullu sjálfstæði í daglegum rekstri en fær um leið fjárhagslega sterkt langtíma eignarhald sem styður við okkar framtíðarsýn. Við hlökkum til samstarfsins.
Jón Mikael Jónasson
•
Framkvæmdastjóri Ofar
Deila frétt