06/11/2025
Ofar efst í útboði Fjársýslunnar fyrir hljóð- og myndlausnir
Samkvæmt opinberum gögnum fékk Ofar hæstu einkunn í útboðinu og eru með hagkvæmustu verðin.

Fjársýslan hafa birt niðurstöður útboðs á hljóð- og myndlausnum fyrir opinbera aðila, þar sem nokkur af helstu tæknifyrirtækjum landsins tóku þátt.
Samkvæmt opinberum gögnum fékk Ofar hæstu einkunn í útboðinu og er þar með efst allra þátttakenda. Ofar er jafnframt skráð forgangsbirgi samkvæmt niðurstöðum Fjársýslunnar með hagkvæmustu kjör í samningi með 15-20% lægri verð en aðrir birgjar.
Þetta er mikil viðurkenning á fagmennsku og gæðum þjónustu Ofar, sem hefur um árabil veitt áreiðanlegar og notendavænar tæknilausnir á hagkvæmu verði fyrir skóla, fyrirtæki og stofnanir um allt land.
Efstu tveir birgjarnir eru samþykktir í beinum kaupum.

Við erum stolt af þessum árangri. Hæsta einkunn í útboði Fjársýslunnar er skýr staðfesting á því að við bjóðum upp á frábæra þjónustu, verð og tæknilausnir.
Ísleifur Örn Guðmundsson
•
Forstöðumaður Viðskiptaþróunar hjá Ofar
Við sköpum einstaka upplifun með tækninni
Ofar býður upp á hljóð- og myndlausnir frá heimsþekktum vörumerkjum á borð við Sharp/NEC, MAXHUB, Promethean, Samsung, Neat, EPOS og Yealink. Lausnir fyrirtækisins nýtast jafnt í menntastofnunum, fundarherbergjum og í hvers kyns viðskiptaumhverfi þar sem skilvirkni og gæði skipta öllu máli.
Deila frétt
