09/05/2025

Fjölskylduvænna fæðingarorlof

Við hjá Ofar leggjum metnað í að vera eftirsóknarverður vinnustaður og við höfum sett fram aðgerðir sem styðja við verðandi foreldra

Stuðningur fyrir, á meðan og eftir fæðingarorlof

Til að styðja við verðandi og nýbakaða foreldra hefur Ofar sett fram eftirfarandi aðgerðir sem gildir fyrir einstaklinga sem fara í samfellt fæðingarorlof í 6 mánuði eða lengur.

Helga Björg Hafþórsdóttir, Mannauðsstjóri hjá Ofar

Við viljum vera vinnustaður þar sem starfsfólk fær þann stuðning sem það þarf á þessum mikilvæga tímapunkti í sínu lífi. Þetta er dýrmætur tími fyrir fjölskyldur og það er frábært að geta sem dæmi boðið upp á ávinnslu orlofs í fæðingarorlofi, ég veit að það eitt og sér skiptir fólk miklu máli og eins að tryggja að launaþróun staðni ekki þegar fólk fer í langt orlof.

Helga Björg Hafþórsdóttir

Mannauðsstjóri hjá Ofar

Aðgerðirnar skiptast í þrjá hluta: Fyrir fæðingarorlof, í fæðingarorlofi og lok fæðingarorlofs. 

Áður en fæðingarorlof hefst fá verðandi foreldrar hjá Ofar einn greiddan frímánuð fyrir settan dag til að undirbúa og hvíla sig fyrir fæðinguna barnsins. Greidda fríið hefur ekki áhrif á veikindarétt. Starfsfólki býðst einnig styrkur til að sækja námskeið tengt undirbúningi fyrir foreldrahlutverkið og launasamtal áður en fæðingarorlof hefst til að tryggja að launaþróun staðni ekki. 

Á meðan á fæðingarorlofi stendur þá heldur starfsfólkið áfram að safna sumarfrísdögum. Margir nýbakaðir foreldrar standa frammi fyrir því að eiga ekkert sumarfrí inni eftir fæðingarorlof og Ofar vill koma í veg fyrir það. 

Þegar fæðingarorlofi lýkur verður starfsfólki Ofar boðið upp á aukinn sveigjanleika í starfi, til dæmis möguleikann á því að snúa til baka í hlutastarfi. Þetta úrræði getur hjálpað fjölskyldum sem eru að reyna að brúa bilið milli fæðingarorlofs og dagvistunar. 

Það er mikilvægt að fólk nái með góðum og áhyggjulausum hætti að samræma vinnu og fjölskyldulíf og þetta er mikilvægt skref til þess. Það hafa nú þegar nokkur fyrirtæki tekið upp þennan stuðning við verðandi foreldra og langar okkur að hvetja önnur fyrirtæki til að gera slíkt hið sama.

Helga Björg Hafþórsdóttir

Mannauðsstjóri hjá Ofar

Deila frétt