13/05/2026

Ofar valið Fyrirmyndar-fyrirtæki 2026

Ofar hefur verið valið Fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2026 í flokki stórra fyrirtækja í könnun VR og skipar sér þar með í hóp fremstu fyrirtækja landsins þegar kemur að starfsánægju, vinnustaðamenningu og mannauðsmálum.

Niðurstöðurnar voru kynntar við hátíðlega athöfn í Silfurbergi í Hörpu miðvikudaginn 13. maí þar sem fyrirtæki úr ólíkum stærðarflokkum voru heiðruð fyrir framúrskarandi árangur.

Viðurkenningin er sérstaklega ánægjuleg fyrir Ofar þar sem fyrirtækið er aðeins rúmlega eins árs gamalt, þótt það byggi á traustum grunni og reynslu allt aftur til ársins 1992. Að ná þessum árangri á svo skömmum tíma er skýr staðfesting á því að fyrirtækið hafi frá upphafi lagt áherslu á sterka liðsheild, metnaðarfulla vinnustaðamenningu og öflugt starfsumhverfi.

Við erum virkilega stolt og þakklát fyrir að hafa hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2026 frá VR. Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum sem skara fram úr þegar kemur að vellíðan starfsfólks, starfsánægju og stjórnun ásamt fleiri þáttum. Við þökkum starfsfólki okkar innilega fyrir þeirra mikilvæga framlag. Það er þeirra fagmennska, samvinna og metnaður sem gerir Ofar að framúrskarandi vinnustað. Viðurkenning sem þessi hvetur okkur til að halda áfram að rækta jákvætt, heilbrigt og metnaðarfullt starfsumhverfi þar sem hver og einn fær tækifæri til að blómstra.

Helga Björg Hafþórsdóttir

Mannauðsstjóri Ofar

Val á Fyrirtæki ársins byggir á niðurstöðum umfangsmikillar könnunar VR þar sem horft er til níu lykilþátta sem snúa meðal annars að starfsánægju, stjórnun, starfsanda, launakjörum, sveigjanleika og vinnuumhverfi.

Fyrirtæki sem lenda í fimmtán efstu sætunum í hverjum stærðarflokki hljóta titilinn Fyrirmyndarfyrirtæki og teljast þar með meðal þeirra fyrirtækja sem skara fram úr á íslenskum vinnumarkaði.

Starfstækifæri

Erum við að leita að þér?

Ofar leggur ríka áherslu á að ráða hæfasta starfsfólk sem völ er á. Við ráðum inn fjölbreyttan hóp fólks með fjölbreytta hæfni og tækniþekkingu.

Deila frétt