07/07/2025
Ofar verður dreifingaraðili fyrir Canon Medical á Íslandi
Ofar hefur undirritað samning um einkarétt á sölu og dreifingu á tækjabúnaði frá heilbrigðistæknirisanum Canon Medical Systems fyrir íslenskan markað.

Samningurinn tók formlega gildi þann 1. júlí 2025.
Canon Medical Systems er alþjóðlegt fyrirtæki sem framleiðir tækjabúnað og tæknilausnir fyrir læknisfræðilegar myndgreiningar, eins og tölvusneiðmyndatökur, segulómanir, röntgenmyndatökur og ómskoðanir.
Það er okkur mikil ánægja að kynna Ofar sem nýja samstarfsaðila Canon Medical Systems á Íslandi. Í gegnum áratugina hefur starfsfólk Ofar átt í árangursríku samstarfi við Canon í Evrópu og við vitum að þau eru rétti aðilinn til að taka næsta skref með okkur á íslenskum heilbrigðismarkaði.
Emilie Endjah
•
CP North Director hjá Canon Medical Systems.
Samstarf við Canon í yfir 30 ár
Ofar hefur sinnt sölu, dreifingu og þjónustu á myndavélabúnaði og prentlausnum frá Canon í meira en þrjá áratugi. Með þessum samning verður allt vöruframboð Canon á Íslandi sameinað undir einu þaki hjá Ofar. Samstarfinu fylgir einnig umfangsmikill, stuðningur, þjálfun og fræðsla á vegum klínískra sérfræðinga á vegum Canon Medical

Við erum ótrúlega stolt af því að verða samstarfsaðili Canon Medical á Íslandi. Við lítum á þetta sem mikilvæga ábyrgð og munum styðja við íslenskt heilbrigðiskerfi með nýjustu myndgreiningartækni, sérfræðiráðgjöf og traustri þjónustu sem skipta máli fyrir fagfólk og skjólstæðinga um allt land.
Jón Mikael Jónasson
•
Framkvæmdastjóri Ofar
Viltu vita meira?
Ofar styður fyrirtæki, stofnanir, endursöluaðila og einstaklinga með tölvu- og tæknibúnaði frá yfir 150 heimsþekktum vörumerkjum á borð við Lenovo, Canon, Bose, Sony og fleirum.
Jón Mikael Jónasson, framkvæmdastjóri Ofar
Netfang: jon.Mikael.Jonasson@ofar.is
Deila frétt