06/02/2026
Snjallsímar frá OPPO komnir á íslenskan markað
Ofar er þjónustu- og dreifingaraðili fyrir OPPO á Íslandi og sér um öll verkstæðis og ábyrgðarmál á tækjunum.

Snjallsímar frá farsímaframleiðandanum OPPO eru komnir í sölu á íslenskum markaði. OPPO er fjórði stærsti farsímaframleiðendi heims í dag og hafa vinsældir vörumerkisins aukist hratt á undanförnum árum.
Símarnir frá OPPO eru meðal þeirra vinsælustu í Asíu og hefur vörumerkið verið í mikilli sókn á Evrópumörkuðum upp á síðkastið, þar á meðal í Bretlandi, Þýskalandi og á Norðurlöndum.
Snjallsímarnir frá OPPO verða kynntir á UTmessunni í Hörpunni um helgina í sýningarbás Ofar.

Stendur jafnfætis risunum á snjallsímamarkaðnum
OPPO er þekkt fyrir að framleiða snjallsíma sem standa jafnfætis risunum á markaðnum þegar kemur að tækni og hönnun, en á verði sem kemur mörgum á óvart. Símarnir þykja skara sérstaklega fram úr í öflugum rafhlöðum, hágæða myndavélakerfum og nútímalegri hönnun.
Flaggskip OPPO, Find X9 Pro er með eina endingarmestu rafhlöðu sem finnst á markaðnum í dag, en síminn getur virkað í tvo sólarhringa án hleðslu, ef miðað er við meðalnotkun. Síminn hefur einnig vakið sérstaka athygli fyrir frábært 200 MP myndavélakerfi sem skilar sér í skýrum og nákvæmum myndum, bæði fyrir byrjendur og lengra komna.
Símar OPPO eru seldir í verslunum Elko og Ofar.

OPPO er þekkt fyrir að framleiða snjallsíma sem standa jafnfætis risunum á snjallsímamarkaðnum þegar kemur að tækni og hönnun, en á verði sem kemur mörgum á óvart.
Brynjar Örn Sigurðsson
•
Vörustjóri hjá Ofar
Um Oppo
OPPO er kínverskt tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun og framleiðslu snjallsíma og annarra rafeindatækja. Fyrirtækið var stofnað árið 2004 og starfar á fjölmörgum mörkuðum um allan heim, þar á meðal í Asíu og Evrópu.
Deila frétt