26/07/2024
Við opnum verslun og skrifstofu á Skipagötu 16 á Akureyri.
Á sama tíma flytur verslun Eldhaf frá Glerártorgi og verður starfrækt undir merkjum Ofar á Skipagötu.

Í dag opnuðum við nýja verslun og skrifstofu við Skipagötu 16 og eykur þannig verulega við þjónustustig á Akureyri. Að sögn Baldurs Arnar Jóhannessonar verslunarstjóra er markmiðið er að stórauka þjónustu við fyrirtæki og einstaklinga á svæðinu:
Verslunin hefur mikla þýðingu fyrir einstaklinga og fyrirtæki á Norðurlandi, jafnvel Austurlandi líka, þar sem í henni gefst fyrirtækjum og einstaklingum kostur á að nálgast allt það nýjasta sem er í boði frá nokkrum af fremstu vörumerkjum í heimi eins og Lenovo, Canon, Sony, Bose og Apple.
Baldur Örn Jóhannsson
•
Verslunarstjóri
Sérfræðingar okkar í búnaði og sérsniðnum lausnum fyrir fyrirtæki og stofnanir flytjast frá Hvannavöllum og verða staðsett á Skipagötu að sögn Baldurs. Eins mun starfsfólks Eldhafs á Glerártorgi flytjast yfir í verslunina.

Hvort sem markmiðið sé að einfalda afgreiðslu og fá betri yfirsýn, tryggja að starfsfólk geti unnið hvar og hvenær sem er eða bjóða upp á framúrskarandi hljóð- og myndgæði, þá erum við með lausnina.
Baldur Örn Jóhannsson
•
Verslunarstjóri
Mörg spennandi tækifæri á Norðurlandi
Okkur finnst mikilvægt að vera með verslun á Akureyri. Viðskiptavinir hafa lengi óskað eftir auknu vöruúrvali og getum við nú loks boðið upp á alvöru framboð af hágæða vörumerkjum sem og betri þjónustu. Skipagata er frábær staðsetning og við getum ekki beðið eftir því að taka á móti fyrstu viðskiptavinum okkar á nýjum stað.
Okkur finnst mikilvægt að vera með verslun á Akureyri. Viðskiptavinir hafa lengi óskað eftir auknu vöruúrvali og getum við nú loks boðið upp á alvöru framboð af hágæða vörumerkjum sem og betri og hraðari þjónustu. Skipagata er frábær staðsetning og við getum ekki beðið eftir því að taka á móti fyrstu viðskiptavinum okkar á nýjum stað.
Baldur Örn Jóhannsson
•
Verslunarstjóri
Deila frétt