13/12/2023
Sony vinnur What HiFi awards 2023
What HiFi kynnir árlega raftæki sem þykja bera af á árinu. Sony vann til verðlauna í nokkrum flokkum meðal annars fyrir besta hágæða sjónvarpið og bar sigur úr býtum í öllum flokkum þráðlausra heyrnartóla.

"Við erum afar stolt af myndgæðum Sony og þessi verðlaun undirstrika yfirburði myndvinnslukerfis Sony," segir Eyjólfur Jóhannsson vörustjóri Sony á Íslandi.
Í dómi What HiFi sem er einn elsti og virtasti tæknifjölmiðill Evrópu um Sony A80L segir meðal annars;
Sony A80L er mjög gott sjónvarp. Það er eðlilegt að við löðumst að yfirlýsingum framleiðenda um hina ofurbjörtu nýju MLA og QD-OLED skjátækni, en Sony A80L sannar að með óaðfinnanlegri myndvinnslu geta myndgæði OLED skjátækninnar verið algjörlega framúrskarandi.
Þetta er sjónvarp sem sameinar hið stórbrotna og fíngerða á mjög sjaldgæfan hátt. Myndin hrífur áhorfandann, en ekki með látum eða glannalega heldur á náttúrulegan hátt. Sjónvarpið sameinar mynd- og hljóðgæði með grípandi hljóm sem framkallast beint úr skjánum, þó við myndum samt, eins og alltaf, mæla með sérhljóðkerfi ef þú vilt alvöru heimabíó upplifun.
Hjá Origo færðu þetta einstaka sjónvarp með fimm ára ábyrgð

Deila frétt