04/03/2026

Til Suður-skautslands með Canon græjur

Náttúrulífsljósmyndarinn Jeroen Van skrifar um ferð sína til Suðurskautslandsins þar sem hann deilir helstu augnablikum, reynslu sinni og mögnuðum myndum úr ferðinni.

Náttúrulífsljósmyndarinn Jeroen Van Nieuwenhove, sem er margverðlaunaður belgísk-íslenskur ljósmyndari með aðsetur á Íslandi, var fyrir stuttu í ótrúlegri ljósmyndaferð á Suðurskautslandinu þar sem hópurinn kannaði stór svæði á Suðurskautsskaganum og Suður-Shetlandseyjum, umkringd mögnuðum ísklæddum fjöllum.

Canon græjurnar sem fóru með í ferðalagið:

Prófaði Canon EOS R6 Mark III í fyrsta sinn í alvöru ljósmyndaferð

Jeroen hefur treyst á Canon EOS R5 Mark II frá því hún kom á markaðinn árið 2024 en var nú að prófa Canon EOS R6 Mark III í fyrsta sinn í alvöru ljósmyndaferð.

,,Ég notaði fyrstu EOS R6 myndavéina lengi vel en fannst 20 megapixlar takmarka mig. Stærri myndflagan (32 megapixla full-frame CMOS myndflaga) í EOS R6 MARK III leysir það vandamál algjörlega fyrir mig. Þá skilar hún einnig mjög litlu noise þegar verið er að skjóta á háu ISO.”

Jeroen Van Nieuwenhove

Náttúrulífsljósmyndari

Magnaðar myndir frá Suðurskautslandinu

Teknar af Jeroen Van Nieuwenhove

Vefsíða Jeroen

Hægt er að lesa mjög áhugavert blogg Jeroen um ferðina

Deila frétt