Áhersla á gæði og nýsköpun

Sony er leiðandi tæknifyrirtæki sem leggur áherslu tækni sem gerir fólki kleift að fanga, upplifa og deila augnablikum lífsins á dýpri og áhrifameiri hátt, hvort sem er í hljóði, mynd eða afþreyingu, með áherslu á gæði, nýsköpun og notendavæna hönnun.

Myndskreyting

Myndavélar

Frelsi til að skapa

Sony þróar myndavélar sem gera ljósmyndurum og kvikmyndagerðarfólki kleift að fanga heiminn með hámarks gæðum, nákvæmni og skapandi frelsi, hvort sem er í krefjandi aðstæðum eða daglegri notkun.

Markmiðið er að sameina leiðandi tækni, áreiðanleika og létta, snjalla hönnun svo notendur geti einbeitt sér að sögunni, ekki búnaðinum.

myndskreyting

Vídeólausnir

Kvikmyndagerð á efsta stigi

Sony er frumkvöðull á nánast öllum sviðum videólausna fyrir atvinnu og áhugafólk  sem gera efnishöfundum kleift að ná mestu gæðum, stöðugleika og nákvæmum litum í hvaða aðstæðum sem er.

Markmiðið er að sameina öfluga tækni og áreiðanlega hönnun svo sköpunarferlið verði einfaldara og notendur geti einbeitt sér að frásögninni sjálfri.

myndskreyting

Hljóðlausnir

Fullkomið hljóð

Sony hljóðlausnir skila nákvæmu og kraftmiklu hljóði sem dýpkar tónlist, kvikmyndir og leiki. Með vandaðri hljóðvinnslu og stílhreinni hönnun færðu upplifun sem passar jafnt heima sem á ferðinni.

myndskreyting

Sjónvörp

Bíóið kemur heim

Sony hefur framleitt hágæða sjónvörp sem skila kvikmyndagæðum inn á heimilið, með raunsannri mynd, djúpum litum og hljóði sem umlykur áhorfandann.

Sony hefur lengi verið leiðandi framleiðandi á búnaði fyrir kvikmynda iðnaðinn og vita hvernig myndinni er ætlað að líta út

Markmiðið er að breyta hverju augnabliki í upplifun, hvort sem þú ert að horfa á bíómynd, íþróttir eða spila leiki.

myndskreyting