Augnablik á flugi 2026
Ragnar Axelsson og Þorfinnur Sigurgeirsson segja sögurnar á bakvið sínar ljósmyndir af fuglum.

Verið velkomin á Augnablik á flugi
Canon og Ofar í samstarfi við Fuglavernd standa fyrir afar spennandi viðburði fimmtudaginn 4. júní þar sem ljósmyndarnir Ragnar Axelsson, RAX, og Þorfinnur Sigurgeirsson munu sýna eigin ljósmyndir af fuglum og segja sögurnar á bak við þær.
RAX hefur í yfir 40 ár ljósmyndað fólk, dýr og landslag á norðurslóðum og notað fugla sem mikilvæga þætti í sínum landslagsmyndum. Á viðburðinum mun hann deila slíkum ljósmyndum og segja frá mikilvægi þeirra.
Þorfinnur Sigurgeirsson, grafískur hönnuður og myndlistarmaður, hefur síðustu níu ár helgað sig fuglaskoðun og fuglaljósmyndun hérlendis og erlendis.
Viðburðurinn fer fram í Ofar, Borgartúni 37. Húsið opnar kl. 19:00 þar sem áhugasamir geta skoðað úrval af Canon EOS R myndavélum og RF linsum. Kynningarnar hefjast kl. 19.30.
Ókeypis er á viðburðinn en nauðsynlegt er að skrá sig.
Við látum þig vita
Það er fullt á þennan viðburð
Skráðu þig á póstlistann og við látum þig vita þegar eitthvað nýtt eða spennandi er að gerast hjá okkur.
Skrá mig á póstlistannFyrirlesarar

Ragnar Axelsson
Ljósmyndari
Í meira en 40 ár hefur Ragnar Axelsson, RAX (f. 1958), ljósmyndað fólk, dýr og landslag á afskekktustu svæðum norðurslóða, þar á meðal Íslandi, Síberíu og Grænlandi. Hann hefur ekki verið þekktur sérstaklega fyrir ljósmyndir af fuglum en hefur engu að síður oft og tíðum notað fugla sem mikilvæga þætti í sínum landslagsljósmyndum. RAX mun deila slíku ljósmyndum með okkur og segja frá mikilvægi þeirra í alls konar römmum.

Þorfinnur Sigurgeirsson
Grafískur hönnuður og myndlistarmaður
Þorfinnur Sigurgeirsson (f. 1963) er grafískur hönnuður og myndlistarmaður sem hefur síðustu níu ár helgað lífi sínu fuglaskoðun og fuglaljósmyndun bæði hérlendis og erlendis. „Það sem er svo heillandi við fuglaskoðun er hin fullkomna óvissa, maður veit aldrei hvað mun gerast, stundum er maður heppinn og manni gengur allt í haginn, aðra daga fer allt í handaskolum. Mest þykir mér gaman þegar mér tekst að frysta einhver augnablik sem gerast jafnvel á broti úr sekúndu og sýna atferli sem er einkennandi á einhvern hátt í fari tegundarinnar sem ég er að mynda.“ Segir Þorfinnur Sigurgeirsson.
Myndir eftir
Ragnar Axelsson
Myndir eftir
Þorfinnur Sigurgeirsson
Viðburður
Prófaðu Canon ljósmyndabúnað í Friðlandinu í Flóa
Þann 6. júní gefst Canon notendum kostur á að prófa úrval af Canon EOS R ljósmyndabúnaði, m.a. langar aðdrátttarlinsur fyrir fuglaljósmyndun, landslagslinsur, macro linsur o.fl. við náttúrulegar aðstæður. Takmarkað sætapláss.





