Friðlandið í Flóa 2026

Canon og Ofar standa fyrir spennandi viðburði í Friðlandinu í Flóa laugardaginn 6. júní frá kl. 10.00–13.00.

6/6/2026
10:00 - 13:00
Friðlandið í Flóa
Ókeypis, en nauðsynlegt er að að skrá sig

Prófaðu Canon ljósmyndabúnað í Friðlandinu í Flóa

Á viðburðinum gefst Canon notendum kostur á að prófa úrval af Canon EOS R ljósmyndabúnaði, m.a. langar aðdrátttarlinsur fyrir fuglaljósmyndun, landslagslinsur, macro linsur o.fl. við náttúrulegar aðstæður. Við mælum þó með því að þáttakendur mæti einnig með eigin Canon myndavélar.

Aðeins 30 sæti eru í boði.

Við hvetjum þáttakendur til að sýna varkárni og aðgát. Mikilvægt er að virða slóða / stíga og fara sér hægt í kringum fuglalífið í Friðlandinu. Varp er hafið og því er mikilvægt að gengið sé varlega um svæðið - það er ekki gott ef lómurinn þarf að víkja af hreiðri í langan tíma.

Halldór Jón Garðarsson, vörustjóri Canon hjá Ofar, Kristján U. Kristjánsson, áhugaljósmyndari, og Bernhard Kristinn, atvinnuljósmyndari, verða á staðnum til að lána út búnað og veita góð ráð.

Gert er ráð fyrir því að fólk komi sér sjálft á staðinn.

Við látum þig vita

Það er fullt á þennan viðburð

Skráðu þig á póstlistann og við látum þig vita þegar eitthvað nýtt eða spennandi er að gerast hjá okkur.

Skrá mig á póstlistann
postlisti

Myndir

Friðlandið í Flóa árið 2025