Gervigreind og nýtt landslag á UT markaði

Spennandi veffundur 4. júní í samstarfi við IBM um áhrif uppgangs AI-risanna á verð, framboð og afhendingar á tæknibúnaði um allan heim.

4/6/2026
09:00 - 10:00
Veffundur | Teams
Ókeypis, en nauðsynlegt að skrá sig

Gríðarleg uppbygging AI-innviða hjá stærstu tæknifyrirtækjum heims hefur sett aukinn þrýsting á framleiðslu, aðfangakeðjur og framboð á búnaði með þeim afleiðingum að verð, afhendingartímar og aðgengi að tæknilausnum hafa tekið miklum breytingum á stuttum tíma.

Á þessum stutta veffundi förum við yfir stöðuna á markaðnum í dag, hvernig uppgangur AI-risanna er að móta þróunina og hvaða áhrif það hefur á fyrirtæki þegar kemur að innkaupum, innviðauppbyggingu og langtímaáætlunum.

  • Eru minniseiningar orðnar verðmætari en gull?

  • Eru í alvörunni yfir 100% verðhækkanir á gagnageymslum og minniseiningum fram undan?

  • Mun verðlagið nokkurn tímann fara aftur niður?

Þegar reynslan talar

Fyrirlesari er Julien Demeulenaere, EMEA sölustjóri fyrir IBM Storage og Mainframe lausnir. Julien býr yfir meira en 18 ára reynslu á sviði innviða og hefur sérhæft sig í segulbandalausnum síðastliðin 10 ár.

Skráðu þig á veffundinn hér

segðu frá