Hvernig á að taka ljósmyndir af almyrkva á sólu?

Sony og Ofar bjóða til spennandi ljósmyndaviðburðar þann 9. júní með Sævari Helga Bragasyni og Gísla Má Árnassyni, þar sem almyrkvinn 12. ágúst verður í aðalhlutverki.

9/6/2026
17:00 - 19:00
Ofar, Borgartún 37
Ókeypis, en nauðsynlegt að skrá sig

Þann 12. ágúst munu Íslendingar upplifa almyrkva á sólu í fyrsta sinn frá árinu 1954. Almyrkvar eru stórfengleg upplifun og magnað sjónarspil sem marga dreymir um að festa á mynd. Það er þó hægara sagt en gert. Ljósmyndun almyrkva krefst góðs undirbúnings, æfingar og réttra varúðarráðstafana.

Á viðburðinum verður farið yfir helstu atriði tengd almyrkvanum á vesturhluta landsins, hvað þarf til að ná góðum myndum, stillingar myndavéla, rafknúin stæði til að fylgja hreyfingu sólarinnar, mismunandi sólarsíur og vídeóupptökur – svo fátt eitt sé nefnt.

Húsið opnar kl. 17:00 þar sem áhugasamir geta prófað Sony ljósmyndabúnað. Fyrirlesarar eru almyrkvaunnendurnir Sævar Helgi Bragason og Gísli Már Árnason.

Við látum þig vita

Það er fullt á þennan viðburð

Skráðu þig á póstlistann og við látum þig vita þegar eitthvað nýtt eða spennandi er að gerast hjá okkur.

Skrá mig á póstlistann
postlisti

Fyrirlesarar

Sævar Helgi Bragason

Hefur upplifað 4 almyrkva

Ljósmyndaáhugi Sævars snýst fyrst og fremst um næturhimininn, norðurljós og stjörnuljósmyndun. Áhuginn kviknaði þegar hann stóð úti með sjónauka, dolfallinn yfir fegurð himinsins og löngun til að deila henni með öðrum. Á hverju ári stendur Sævar fyrir ljósmyndaferðum með Gísla Má Árnasyni og Babak Tafreshi, einum fremsta næturljósmyndara heims og samstarfsmanni National Geographic. Úr samstarfi þeirra varð meðal annars bókin Iceland at Night. Sævar leggur áherslu á náttúrulegar og raunverulegar myndir þar sem fegurðin fær að njóta sín án óþarfa ýkja.

Gísli Már Árnason

Hefur upplifað tvo almyrkva

Gísli hefur stundað stjörnuljósmyndun í um 20 ár en undanfarin ár hafa stjörnufræði tengdir viðburðir átt hug hans allan. Viðburðir eins og halastjörnur, samstöður himintungla, tunglmyrkvar og að sjálfsögðu sólmyrkvar. Norðurljós skipa þar að sjálfsögðu stórann sess því ásamt Sævari hefur hann séð um stjörnuskoðun og norðurljósafræðslu, ásamt ljósmyndaferðum með Babak Tafreshi þar sem áhersla er á næturljósmyndun og norðurljós.