Vinnustofa: IBM Security & Resilience Assessment (SaRA)
Ofar, í samstarfi við IBM, heldur spennandi SaRA vinnustofur dagana 24.–26. mars 2026. Fyrirlesari er Gerd Franke, Senior IT Architect hjá IBM, sem býr yfir víðtækri alþjóðlegri reynslu á sviði öryggismála.

Vinnustofurnar eru 2-3 klukkustundir að lengd og byggja á sérhönnuðum verkfærum og spurningalistum frá IBM. Þar er farið kerfisbundið yfir stöðu netöryggis, upplýsingaöryggis og rekstraröryggis, með sérstaka áherslu á seiglu og viðnámsþrótt fyrirtækja gagnvart ógnum og truflunum í rekstri.
Þáttakendum verður boðið á 1 klst undirbúningsfund á TEAMS 1-2 vikum fyrir vinnustofuna.
Hvað er SaRA?
SaRA öryggis- og viðnámsmat er brú milli núverandi stöðu og viðurkenndra viðmiða. Með matinu er hægt að greina styrkleika, veikleika og frávik frá bestu starfsvenjum, þar á meðal netöryggisramma bandarísku staðlastofnunarinnar (NIST/NIS2/CSF) og regluverki Evrópusambandsins um stafræna rekstrarseiglu (DORA).
Af hverju að taka þátt?
Fáðu innsýn í hversu vel skipulagt fyrirtækið er til að takast á við netöryggisatvik
Kynnstu aðferðafræði matsins og þeim niðurstöðum sem má vænta
Uppgötvaðu hvernig leiðandi fyrirtæki tryggja hraða endurheimt og samfellu í rekstri
Af hverju að framkvæma matið?
SaRA veitir skipulagt og framleiðendahlutlaust mat á viðbúnaði fyrirtækisins, greinir veikleika í ferlum og verkfærum og skilar skýrum, forgangsröðuðum tillögum sem eru sérsniðnar að þínu rekstrarumhverfi.
Þú færð
Hagnýta vinnustofa með leiðsögn sérfræðinga í netviðnámi
Sérsniðina skýrslu um þroskastig og áhættu
Hagnýtar leiðbeiningar til að draga úr rekstrar- og öryggisáhættu
Skráðu þig hér
segðu frá

Gerd Franke
Senior IT Architect hjá IBM
Gerd Franke er Senior IT Architect hjá EMEA Storage teymi IBM Client Engineering. Hann er þekktur sérfræðingur í stefnumótun og arkitektúr gagnageymslulausna, með áherslu á netöryggi og rekstrarþol (cyber resiliency), blandaðar skýjalausnir (hybrid cloud storage) og nútímalega gagnavernd. Gerd leiðir oft stór og flókin verkefni fyrir viðskiptavini og er reglulegur fyrirlesari á ráðstefnum á vegum IBM. Hann hefur starfað hjá IBM í yfir 30 ár í fjölbreyttum innlendum og alþjóðlegum hlutverkum og er með verkfræðimenntun í raf- og fjarskiptatækni.
