Skilareglur
30 daga skilaréttur og réttur til að falla frá samningi
Skilafrestur á vöru sem keypt hefur verið hjá Ofar eru 30 dagar frá dagsetningu kvittunar fyrir kaupum og fæst fullt andvirði vöru endurgreitt í formi inneignarnótu. Þegar neytandi nýtir rétt sinn til að falla frá samningi sem gerður er í gegnum síma, í netverslun Ofar eða utan fastrar starfsstöðvar, innan 14 daga frá því að neytandi fær vöru í sína vörslu, býðst viðskiptavini full endurgreiðsla sem jafngildir upphaflegu kaupverði vörunnar.
Skil á vöru eru háð eftirfarandi skilyrðum:
Að framvísað sé kvittun fyrir kaupum á viðkomandi vöru eða vara sé merkt með skilamiða
Að plastumbúðir (herptar, soðnar, límdar) og innsigli séu ekki rofin
Að vara teljist í söluhæfu ástandi
Að allir aukahlutir sem fylgja eiga vörunni séu til staðar, þ.m.t. allar snúrur og leiðbeiningar
Að ekki hafi verið settur upp hugbúnaður á vöruna/búnaðinn
Að vara sé ekki útsöluvara
Að vara sé ekki sérpöntun eða sérsniðin að þörfum viðskiptavinar
Ofar áskilur sér rétt til að hafna skilum á vöru eða neita viðskiptavini um fulla endurgreiðslu séu ofangreind skilyrði ekki uppfyllt. Athuga skal að endurgreiðsla vegna skila á vöru nær aðeins til kaupverðs búnaðar en annar kostnaður sem fellur til, m.a. vegna flutnings á vöru, er á ábyrgð viðskiptavinar. Reynist vara gölluð kann neytandi að eiga rétt á að Ofar endurgreiði sendingarkostnað.
Tekið skal fram að í þeim tilvikum er um kaup á hugbúnaði er að ræða og viðskiptavinur fær afhentan leyfiskóða er ekki hægt að skila slíkri vöru eftir að kóði hefur verið afhentur.
Aðeins er tekið við eftirfarandi vörum í óopnuðum eða innsigluðum umbúðum:
Farsímar
Rekstrarvörur, blekhylki, rafhlöður, pappír, ljósaperur o.s.frv.
Minniskort, USB lyklar
Flakkarar
Harðir diskar
Vörur sem eru keyptar forsniðnar, t.d. ákveðin lengd af snúrum
Hugbúnaður
Aðrar vörur sem hægt er að afrita eða fullnýta á 30 dögum
Skilaferli
Forsenda vöruskila er reikningur/sölunóta eða í ákveðnum tilfellum skilanúmer útbúið af söluráðgjafa í söludeild. Fylla þarf út form hér á síðunni til að fá skilanúmer hjá söluráðgjafa.
Vöru skal skilað í Þjónustumiðstöð Ofar, Köllunarklettsvegi 8, nema sérstaklega hafið verið samið um annað.
Nánari upplýsingar um skilareglur Ofar og rétt neytenda til að falla frá samningi má finna hér.
Tilkynning um að fallið sé frá samningi / vöruskil
Nauðsynlegt er að viðskiptavinur fylli út upplýsingar neðst á þessari vefsíðu svo hægt sé að afgreiða beiðnir. Til að afgreiða beiðni viðskiptavinar er Ofar nauðsynlegt að vinna með persónuupplýsingar hans. Nánari upplýsingar um vinnsluna má finna í persónuverndarstefnu Ofar og vísast til hennar.
Verðskrá
Þjónustugjöld
Beiðni
Tilkynning um að fallið sé frá samningi / vöruskil
Nauðsynlegt er að viðskiptavinur fylli út neðangreindar upplýsingar svo hægt sé að afgreiða beiðni hans. Til að afgreiða beiðni viðskiptavinar er Ofar nauðsynlegt að vinna með persónuupplýsingar hans. Nánari upplýsingar um vinnsluna má finna í persónuverndarstefnu Ofar og vísast til hennar.