27/03/2026 • Sebastian Popovic Alexandersson
12 ára forysta með Lenovo ThinkSystem
Samkvæmt hinni óháðu ITIC 2025 Global Server Hardware Reliability Report hefur Lenovo ThinkSystem verið metið sem áreiðanlegasti x86 netþjónninn á markaðnum í 12 ár í röð.

Fyrir marga stjórnendur eru netþjónar dálítið eins og rafmagn eða vatn, hlutir sem eiga bara að virka án þess að maður þurfi að hugsa um þá. En þegar tæknin bregst, stoppa hjólin. Niðritími er ekki bara tæknilegt vandamál; það er tapaður vinnutími, rofin þjónusta og beint fjárhagslegt tjón.
Nýjasta skýrsla greiningarfyrirtækisins ITIC (2025 Global Server Hardware Reliability Report) var að koma út og hún staðfestir það sem margir í tæknigeiranum hafa vitað lengi: Lenovo ThinkSystem er áreiðanlegasti x86 netþjónninn á markaðnum.

Hvað þýðir „Seven Nines“ fyrir þig?
Í skýrslunni er talað um að Lenovo nái 99,99999% áreiðanleika. Á mannamáli er þetta kallað „Seven Nines“.
Fyrir stjórnendur sem þurfa að tryggja að fólkið sitt geti unnið vinnuna sína, þýðir þetta að ófyrirséður niðritími á hverjum netþjóni er aðeins 3.15 sekúndur á ári. Á meðan aðrir framleiðendur glíma við tíðari bilanir eða öryggisveikleika í vélbúnaði, situr Lenovo eitt eftir með þessa vottun.
12 ára saga sem gefur öryggi
Það er auðvelt að eiga eitt gott ár, en Lenovo hefur nú verið í efsta sæti yfir áreiðanlegasta x86 vélbúnaðinn í 12 ár samfleytt. Þegar þú velur innviði fyrir fyrirtækið þarftu að vita að fjárfestingin sé örugg til langs tíma. Þessi tólf ára samfellda forysta sýnir að Lenovo leggur meira upp úr gæðum í hönnun og framleiðslu en nokkur annar á markaðnum.
Þetta er ekki spurning um smekk, heldur hlutlaus gögn frá þúsundum fyrirtækja um allan heim sem ITIC tekur saman.

Af hverju ættirðu að kynna þér þetta nánar?
Sem stjórnandi viltu lágmarka áhættu. Með því að velja búnað sem sannanlega bilar sjaldnast:
Sleppurðu við óvænt útgjöld vegna viðgerða og neyðarþjónustu.
Eykurðu afköst þar sem kerfin eru stöðugri undir miklu álagi.
Sefurðu betur vitandi að gögnin og þjónustan þín hvíla á traustasta grunni sem völ er á.
Þjónusta í efsta stigi
Hjá Ofar hjálpum þér að finna réttu ThinkSystem uppsetninguna sem hentar þínum rekstri, hvort sem þú þarft mikil afköst fyrir gagnagrunna eða traustan grunn fyrir daglegan rekstur.

Ráðgjöf
Vantar þig ráðgjöf?

Höfundur bloggs
Sebastian Popovic Alexandersson
Vörustjóri þjónustu & Lenovo innviða
Deila bloggi