05/08/2026 • Brynjar Örn Sigurðsson
Topp 4 skólatölvurnar 2026
Það er auðvelt að villast þegar úrvalið er svona mikið. Sem betur fer eru alltaf nokkrar forystugeitur sem rata réttu leiðina og leiða hjörðina áfram. Við tókum saman fjórar Lenovo fartölvur sem standa upp úr fyrir ólíka notendur og ólíkar þarfir.

Sumarið kveður, skólatöskurnar fara aftur á axlirnar og allt í einu virðist sem allir séu komnir í leit að nýrri fartölvu. Fyrir suma er þetta fyrsta fartölvan fyrir skóla. Fyrir aðra er einfaldlega kominn tími til að kveðja tölvuna sem hefur staðið vaktina dyggilega í mörg ár og leyfa henni að fara á beit.
Fartölva í dag er miklu meira en tæki til að skrifa ritgerðir. Hún þarf að fylgja þér í fyrirlestra, hópverkefni, Teams-fundi, gervigreindarverkfæri, myndvinnslu, forritun og allt hitt sem fylgir skóla- og atvinnulífinu. Hún þarf að vera áreiðanleg, öflug og tilbúin þegar á reynir.
Forystugeiturnar
Lenovo Yoga 7 2-in-1

Sveigjanleg og snjöll
Sumir vilja gera allt á sama tækinu og Yoga 7 segir einfaldlega: Meeeh, ekkert mál. Snertiskjárinn og 360° lömin gera þér kleift að skrifa glósur, teikna, kynna verkefni eða vinna á þann hátt sem hentar þér best.
Hún er létt í tökunum, öflug í vinnunni og hentar jafnt í skólastofuna sem sófann heima.
14" WUXGA OLED snertiskjár.
AMD Ryzen AI 5 340 6 kjarna örgjörvi.
16GB vinnsluminni.
Hægt að snúa skjá í 360°
Íslenskt lyklaborð og 3 ára ábyrgð.
Lenovo Yoga Slim 7

Lipur og léttbyggð
Þegar fartölvan fylgir þér allan daginn skiptir hvert gramm máli. Yoga Slim 7 sameinar létta hönnun, glæsilegt útlit og öflug afköst. Hún fer auðveldlega í bakpokann en er alltaf tilbúin þegar verkefnin verða aðeins stærri.
Ef fartölvur væru í fjallgöngu væri þetta geitin sem væri löngu komin á toppinn áður en hinar væru komnar af stað.
14" WUXGA OLED skjár.
AMD Ryzen AI 5 340, 6 kjarna örgjörvi.
16GB vinnsluminni.
Nóg af geymsluplássi.
Íslenskt lyklaborð og 3 ára ábyrgð.
Lenovo Legion LOQ

Kraftmikil og tignaleg
Ef námið snýst um verkfræði, forritun, þrívíddarvinnslu, myndbandsklippingu eða önnur þung verkefni þarftu fartölvu sem ræður við álagið. Legion LOQ er byggð fyrir slíkt. Hún skilar miklum afköstum þegar mest reynir og þegar skóladeginum lýkur breytist hún auðveldlega í frábæra leikjavél.
Þetta er líklega sú geit sem myndi velja brattasta klettinn bara af því hún getur það.
15.3" WUXGA IPS skjár
AMD Ryzen 7 250, 8 kjarna örgjörvi
16GB vinnsluminni (stækkanlegt í 32GB)
NVIDIA GeForce RTX 5050 8GB GDDR6 skjákort
Íslenskt lyklaborð og 2 ára ábyrgð.
Lenovo IdeaPad Slim 5

Traustur skólafélagi
Þetta er geitin sem mætir alltaf á réttum tíma og klárar verkefnin án þess að gera mikið veður úr því. IdeaPad Slim 5 er akkúrat rétta blandan af afköstum, gæðum og verði.
Ritgerðir, Teams, Microsoft 365, Canva, vafri með tuttugu opna flipa (við dæmum engan) og öll dagleg verkefni eru nákvæmlega það sem hún er hönnuð fyrir.
14" WUXGA skjár.
Intel Core Ultra 5 135H, 14 kjarna örgjörvi.
16GB vinnsluminni.
Nóg af geymsluplássi.
Íslenskt lyklaborð og 2 ára ábyrgð.
Af hverju skiptir íslenskt lyklaborð máli?
Það hljómar kannski eins og smáatriði þar til þú eyðir nokkrum klukkustundum á dag í að skrifa. Íslenskt lyklaborð þýðir að þú hefur öll íslensku táknin á réttum stað, skrifar hraðar, vinnur þægilegar og þarft ekki að læra nýjar lyklasamsetningar fyrir ð, þ, æ, ö og á.
Þetta eru litlu atriðin sem skipta miklu máli þegar þú notar fartölvuna á hverjum degi í nokkur ár og sem betur fer koma allar nýjar Lenovo fartölvur hjá Ofar með íslensku lyklaborði.
Fáðu hugarró
Skólatölva fylgir þér víða. Hún ferðast í bakpoka, situr á kaffihúsum, í fyrirlestrasölum og á heimaskrifborðinu. Hún verður hluti af daglegu lífi í mörg ár og því er gott að vita að Lenovo fartölvur hjá Ofar eru með 2 til 3 ára ábyrgð.
Við minnum einnig á að í boði er sérstök tækjatrygging með öllum Lenovo fartölvum. Með henni færðu aukið öryggi og hugarró ef óhapp verður, svo þú getir notið fartölvunnar án óþarfa áhyggja.

Höfundur bloggs
Brynjar Örn Sigurðsson
Vörustjóri Lenovo
Deila bloggi
