05/06/2023
Hvernig er hægt að einfalda og hámarka rekstur lagersins?
Betri yfirsýn, færri mistök, tímasparnaður og hagræðing. Réttur hug- og vélbúnaður fyrir vöruhús stuðlar að öllu þessu.

Sérfræðingar afgreiðslulausna þeir Stefán Jóhannson verkefnastjóri og Emil Þór Reynisson vörustjóri, voru beðnir um að halda kynningu hjá Vörustjórnunarfélag Íslands sem héldu námskeið á dögunum með yfirskriftina Það er engin vörustjórnun án vöruskráninga - Hvað er stafrænn tvíburi vörunnar? Á námskeiðinu var fjallað um nýjungar í upplýsingatækni og lausnir við skráningar með strikamerkjatækni við vörustjórnun.
Það var gaman að hitta þetta fólk, heyra hvaða mál brunnu á þeim og miðla af reynslu okkar. Við höfum lengi unnið í þessum geira og finnum að flest eru að velta fyrir sér sömu hlutunum, hvað sé í boði af hugbúnaði fyrir verkferla þeirra og hverskonar vélbúnað þau þurfi. Öll vilja að lagerstaðan sé rétt og að allt verði léttara og öruggara án þess að snúa þurfi starfseminni á hvolf.
Stefán Jóhannson
•
Verkefnastjóri Afgreiðslulausna
Ein lausn sem einfaldar verkferla
Vinna í vöruhúsum hefur breyst mikið á síðustu árum. Þegar vörutalning fór fram þurfti starfsfólk t.d. að prenta út vörulista, handtelja, skrifa magnið á blað og skrá svo allt saman inn í borðtölvu, með tilheyrandi hættu á innsláttarmistökum, þegar talningunni var lokið. Langur tími fór í að ganga fram og aftur um lagerinn í leit að vörum sem þurfti að afgreiða. Í dag eru hins vegar ýmsar lausnir í boði fyrir fyrirtæki með fjölbreyttan rekstur sem allar miða að því að einfalda verkferla og stuðla að betri rekstri.
Stefán og Emil kynntu fyrir hópinn þær lausnir sem Afgreiðslulausnir Origo hafa upp á að bjóða. Þar mætti helst nefna vöruhúsakerfið K8 wms (Warehouse Management System) sem er þróað á Íslandi og tekur mið af íslenskum markaði út frá margra ára reynslu hönnunar á vöruhúsakerfum fyrir fyrirtæki hér á landi. Úrval vélbúnaðar í boði fyrir kerfið er einnig í takt við fjölbreyttar aðstæður íslenskra fyrirtækja.
Hvað hefur kerfið upp á að bjóða?
Vöruhúsakerfið K8 wms býður upp á eftirfarandi verkferla og er í stöðugri þróun og hér er hægt að lesa um 5 ástæður þess af hverju fyrirtæki ættu að innleiða vöruhúsakerfi:
Vörumóttaka
Framleiðsla
Millifærsla
Millifærslupantanir
Tiltekt
Dreifing til kaupenda
Uppfletting
Vörutalning
Rýrnun/afskriftir
Geymsla
Nákvæm staðsetning og upplýsingar í rauntíma
Með K8 wms er hægt að hafa birgðastöðu vöruhússins uppfærða í rauntíma inn í fjárhagskerfinu. Nákvæm staðsetning hverrar vöru er skráð ásamt magni, jafnvel þó sama varan sé á fleiri en einum stað, ásamt frekari upplýsingum á borð við fyrningardagsetningu. Með þessu hlýst betri yfirsýn sem sparar tíma starfsfólks, minnkar líkur á að þeim yfirsjáist vörur og nýting rýmisins er hámörkuð.
Vélbúnaður hámarkar notkun hugbúnaðar
Til að fá sem mest út úr hugbúnaðinum er gott að styðja við hann með hentugum vélbúnaði. Hægt er að velja á milli margra útfærslna frá traustum framleiðendum og mikilvægt að skoða vel hvað hentar aðstæðum hverju sinni. Við myndum þannig ekki velja sömu handtölvurnar í upphitaðri geymslu með góðu netsambandi og á togara þar sem frost og salt koma við sögu.
Með handtölvu og prentara getur starfsfólk prentað út strikamerki til að merkja vörur, skannað og skráð inn upplýsingar, allt á meðan það er á ferð um vöruhúsið. Þetta flýtir fyrir afgreiðslu ásamt því að minnka pappírsnotkun. Með netsambandi uppfærast upplýsingarnar jafnóðum í fjárhagskerfinu sem gerir starfsfólki á skrifstofu kleyft að fylgjast með birgðastöðunni í rauntíma. Skýrari upplýsingar minnka líkur á mannlegum mistökum og allt þetta stuðlar að betri þjónustu við viðskiptavini og þar af leiðandi betri útgeislun fyrirtækisins.
Kröfur um að geta tekið ákvarðanir út frá fyrirliggjandi gögnum á hverjum tíma eru sífellt að aukast og hér er hægt að lesa um aukin skilvirkni og umhverfisvænni rekstur með handtölvum.

Þegar kemur að því að fjárfesta í vélbúnaði fyrir starfsemina er mikilvægt að velja þann búnað sem hentar viðfangsefninu best. Þættir eins og umhverfi, notkun og jafnvel varan sjálf skipta mestu máli. Framleiðendur eins og Zebra Technologies og Honeywell hafa áralanga reynslu og frumkvæði við að þróa verkefna-miðaðan búnað og lausnir sem taka til greina allar atvinnugreinar. Aðgengi að þekkingu og þjónustu búnaðar er ekki síst mikilvæg. Vel valinn búnaður getur skipt sköpum fyrir árangur og framleiðni úti á gólfi.
Emil Þór Reynisson
•
Vörustjóri Afgreiðslulausna
Í sífelldri þróun til að veita betri þjónustu
Kerfið hentar fyrir allar gerðir smárra og millistórra fyrirtækja þó reksturinn kunni að vera ólíkur. Eini munurinn í notkun á því er áhersla á mismunandi þætti. Kerfið er jafnframt í sífelldri þróun út frá endurgjöf notenda til að hámarka gagnsemi þess.
Þó rauði þráðurinn í starfsemi vöruhúsa sé sá sami hjá flestum fyrirtækjum er nauðsynlegt að greina vel þarfir og væntingar hvers fyrirtækis fyrir sig. Best er að nálgast hvert verkefni með opnum huga, fara vel yfir verklag og aðstæður og í kjölfarið koma með tillögur sem gera góðan rekstur enn betri.
Deila frétt