Notendavænt vöruhúsakerfi
K8 wms er notendavænt og hagkvæmt vöruhúsakerfi sem gefur aukna yfirsýn, betri nýting á geymsluplássi og tíma starfsfólks, fækkar villum og eykur ánægju viðskiptavina. K8 er þróað í samvinnu við íslensk fyrirtæki af vöruhúsasérfræðingum okkar sem aðstoða við alla ráðgjöf, innleiðingu og þjónustu.

Viðskiptavinir K8 wms
Lausn fyrir stór sem smá verkefni
Hvað er K8 wms vöruhúsakerfi?
K8 wms samanstendur af handtölvu- og borðtölvuviðmóti ásamt upplýsingaskjám sem allt saman keyrir á sama gagnagrunninum. Helstu verkferlin sem í boði eru á handtölvunum eru:
Vörumóttaka
Vörur eru skráðar inn í staðsetningar í vöruhúsi um leið og móttökutalning fer fram. Í þessu verkferli er einnig er hægt að prenta vörumiða ef þörf er á.
Millifærsla
Með þessu ferli eru vörur færðar á milli staðsetninga innan vöruhússins.
Tiltekt
Frá fjárhagskerfinu koma sölupantanir, sölureikninga og hráefnistiltektir. Í þessu verkferli fær notandi leiðbeiningar um hvaða vörur hann eigi að taka til, hvert hann á að sækja þær og í hvaða magni. Einnig er hægt að prenta út límmiða til að merkja pakkningar að lokinni tiltektinni.
Framleiðsla
Þegar vara hefur verið framleidd eru hún skráð inn í vöruhúsið með þessu verkferli.
Vöruskil
Nauðsynlegt er að geta tekið við vörum sem skilað er og skráð þær inn í vöruhúsið. Þetta ferli uppfyllir þá kröfu.
Geymsla
Stundum þarf að vera hægt að geyma pantanir fyrir viðskiptavini eftir að tiltekt lýkur og þetta ferli er sérmíðað í kringum þá þörf.
Dreifing til kaupenda
Útkeyrslukerfi fyrir bílstjóra þar sem hægt er t.d. að kalla fram götukort, taka myndir, fá rafræna undirskrift og hafa yfirsýn yfir hver staða afhendinga er.
Vörutalning
Sítalning niður á hólf til að halda öllum skráningum réttum allan ársins hring.
Afskriftir
Ef vörur skemmast eða verða ósöluhæfar af öðrum orsökum þarf að vera hægt að segja kerinu það.
K8 wms vöruhúsakerfi er þróað í samvinnu við íslensk fyrirtæki
Að finna rétta kerfið getur verið tímafrekt og að fjárfesta í lausn sem kemur svo í ljós að hentar ekki rekstrinum er kostnaðarsamt. Þá er gott að geta leitað til traustra og reynslumikilla aðila á íslenskum markaði. K8 wms er eina vöruhúsakerfið á markaðnum sem er þróað í samvinnu við íslensk fyrirtæki.
Kerfið er fjárhagslega hagkvæmt í samanburði við önnur sambærileg kerfi á markaðnum og einstaklega notendavænt. Kerfið hentar allt frá smærri fyrirtækjum með einfaldan rekstur upp í stóriðju og framleiðslufyrirtæki.
Hafðu samband strax í dag og vöruhúsasérfræðingar okkar fara yfir þarfirnar með þér - án allra skuldbindinga.

Þróað í samstarfi við íslensk fyrirtæki
Helstu kostir þess að innleiða vöruhúsakerfi
Az Medica- Ánægður viðskiptavinur
Viðtal við Stefán Pálsson & Birkir Friðfinnsson
„Við erum með miklu betri yfirsýn yfir hvað við erum að afhenda og hvenær við erum að afhenda. Hraði afgreiðslu er orðin meiri þar sem við í rauninni erum sneggri að taka allt til. Við getum gengið beint að vörunni sem að við vorum kannski ekki alveg með áður.“
0:00
0:00
Hirzlan - Ánægður viðskiptavinur
Viðtal við Mörtu Sigurjónsdóttir
„Við hjá Hirzlunni spörum gífurlegan tíma með K8 vöruhúsakerfinu frá Ofar og höfum notað það síðan 2018. Kerfið bendir okkur á hvar vörurnar eru, þannig að afgreiðsla gengur mun hraðar. Geymsluplássið nýtist miklu betur og afleysingafólk getur lært á kerfið á nokkrum mínútum.“
0:00
0:00
Orka - Ánægður viðskiptavinur
Viðtal við Pál Guðlaugsson
"Við tókum inn K8 vöruhúsakerfið 2021 og erum gríðarlega ánægðir með reynsluna sem við höfum fengið af því. Síðan þá hafa rekstrartölur verið mun skemmtilegri og veltan nánast tvöfaldast. Það hefði ekki verið hægt nema vera með eitthvað alvöru kerfi í kringum þetta."
0:00
0:00
Umsagnir viðskiptavina okkar
Nýjustu fréttir og fróðleikur















