27/01/2026

Nýjungar hjá Ofar á UTmessunni 2026

Frumsýning á OPPO á Íslandi ásamt nýjustu græjunum frá Lenovo, Aqara, Maxhub, Bose og Sony.

Ofar bás á UTmessunni 2025

UTmessan er stórskemmtilegur viðburður fyrir öll sem elska tækni eða langar að kynna sér töfra tækninnar! Þar má skoða og prófa það nýjasta sem er að gerast í tölvu- og tækniheiminum.

Á ráðstefnudeginum 6. febrúar, er boðið upp á fróðlega fyrirlestra og sýningar fyrir skráða gesti, en á tæknideginum þann 7. febrúar er opið hús þar sem öll eru velkomin að gera sér glaðan dag með líflegum sýningum og fjölbreyttum kynningum. 

Komdu við í básnum hjá Ofar og kynntu þér framtíðina í tölvu- og tæknibúnaði.

Frumsýning á OPPO á Íslandi

Hvenær: Föstudagur/Laugardagur

OPPO hefur vakið athygli á heimsvísu fyrir framúrskarandi myndavélar, hraðhleðslu og snjallar lausnir í daglegri notkun. Nú fá íslenskir notendur loksins tækifæri til að upplifa þetta sjálfir.

Ofar er viðurkenndur þjónustu- og dreifingaraðili OPPO á Íslandi.

Upprúllanlegur fartölvuskjár

Hvenær: Föstudagur/Laugardagur

Lenovo ThinkBook Plus Gen 6 Rollable er ótrúleg fartölva með upprúllanlegum OLED skjá sem stækkar úr 14“ í 16,7“ með einfaldri skipun.

Hugmyndin er einföld, skjárinn á að aðlagast notandanum, ekki öfugt.

Sjón er sögu ríkari!

0:00

0:00

Sú eina sanna mætir á svæðið

Hvenær: Laugardagur

Við verðum með Lenovo Legion leikjafartölvu, nýjustu týpuna af Yoga fartölvunni á svæðinu. Athugið að það er bannað að gefa þeim epli að borða!

Aqara mætir á svæðið með nýjasta nýtt í snjallheimilistækjum.

Vinnustöð sem eykur árangur

Hvenær: Föstudagur

Lenovo ThinkPad X9 verður á svæðinu, en hún setur ný viðmið í afköstum og upplifun með gervigreind. Við verðum einnig með ótrúlegan Lenovo ThinkVision P40WD 5K skjá með Eyesafe blágeislavörn till sýnis.

Fundar- og skjálausnir

Hvenær: Föstudagur/Laugardagur

Við römmum inn básinn okkar með hágæða skjálausnum frá Fabulux LED og SHARP.

Við kynnum MAXHUB Xboard lausn sem er snertiskjáir sem sameinar snjalltæki og samskiptalausn í einum stílhreinum pakka. Frábær lausn fyrir fundarherbergi, fyrirlestra og fjarfundi með hágæða skjáupplifun, fjölhæfni, nákvæmri snertitækni og innbyggðum samvinnulausnum, hannaðir til að bæta samskipti og samvinnu í öllum aðstæðum.

Algjör veisla fyrir eyrun

Hvenær: Föstudagur/Laugardagur

Við verðum með það allra nýjasta í heyrnartólum og hátölurum frá Bose og Sony, hljóðgæði sem þarf einfaldlega að heyra til að trúa.

Spennandi lukkuleikur alla helgina

Komdu við í básnum hjá Ofar, prófaðu, spurðu, og upplifðu. Við lofum góðri stemningu og glæsilegum vinning. Hlökkum til að sjá þig :)

Deila frétt