10/02/2026
ThinkBook og OPPO stálu senunni á UTmessunni
Það var mikið fjör um helgina á Ofar básnum á UTmessunni og frá opnun var stöðugur straumur gesta sem vildu kynna sér og prófa það allra nýjasta í tölvu- og tækniheiminum.

Eitt stærsta umræðuefni sýningarinnar var án efa frumsýning á OPPO á Íslandi. Fjöldi gesta lagði leið sína sérstaklega á básinn til að skoða nýju snjallsímana. Viðbrögðin voru frábær og ljóst að OPPO hefur slegið tóninn fyrir nýja tíma á íslenskum snjallsímamarkaði.
Ekki síður vakti Lenovo ThinkBook Plus Gen 6 Rollable mikla athygli. Upprúllanlegi OLED-skjárinn, sem stækkar úr 14“ í 16,7“ með einfaldri skipun, vakti bæði undrun og aðdáun gesta. Hugmyndin er einföld en byltingarkennd: Skjárinn aðlagast notandanum, ekki öfugt.
Auk þess kynnti Ofar fjölbreytt úrval lausna, þar á meðal Lenovo Legion leikjafartölvur, snjallheimilistæki frá Aqara, fundar- og skjálausnir frá MAXHUB, öflugar vinnustöðvar og skjái frá Lenovo, sem og nýjustu hátalara og heyrnartól frá Bose og Sony.
Við þökkum öllum sem heimsóttu básinn fyrir frábæra stemningu og ógleymanlega helgi.
Dregið hefur verið í lukkuleiknum og munum við hafa samband við heppinn vinningshafa sem hlýtur glænýjan OPPO Find X9 snjallsíma í verðlaun.
Myndaveisla
Tæknin mætir augnablikinu
Bernhard Kristinn ljósmyndari var mættur á svæðið með Canon myndavélina og fangaði allar bestu stundirnar, stemninguna og tæknina í Ofar básnum á UTmessunni á föstudeginum.
Sjón er sögu ríkari :)
Deila frétt





























