Hljóðlausnir sem móta upplifun

Við hjálpum fyrirtækjum og stofnunum að skapa rými þar sem hljóð bætir upplifun. Heildrænar lausnir sem hannaðar eru með notkun, endingu og rekstur í huga.

Myndskreyting

Öll þekktustu vörumerkin á einum stað

Bose Professional logo
Genelec logo

Lausnir fyrir stór sem smá verkefni

Hvaða hljóðkerfi hentar þínum rekstri?

Fyrirtæki

Við bjóðum upp á stílhreinar og einfaldar hljóðlausnir fyrir fyrirtæki og stofnanir. Margar tegundir af hátölurum sem falla vel inn í ýmis rými og fagurfræði. 

Tónleikastaðir

Allar stærðir og gerðir af hljóðkerfum og hljóðstýringum eru í boði hjá okkur. Allt frá lítlum kerfum fyrir trúbadora, til stórra hljóðkerfa fyrir stórtónleika.

Menningarstofnanir

Við bjóðum upp á margar útfærslur af hljóðkerfum og þráðlausum búnaði fyrir menningarstofnanir. Hvort sem það er lítið kerfi til að pakka saman og setja í bílinn eða kerfi fyrir stærri sali.

Útsending

Við bjóðum upp á mynd og hljóðbúnað fyrir allar stærðir og gerðir útsendinga. Einfaldir spjallþættir eða beinar útsendingar af íþróttaviðburðum.

Bruna- og kallkerfi

Við höfum sérfræðiþekkingu í EVAC, bruna- og kallkerfum. Við erum með lausnir flugstöðvar, heilbrigðisstofnanir, verslanir og fleira.

Menntastofnanir

Við bjóðum upp á margþættar launsnir fyrir skóla og kennslurými þar á meðal bjöllu- og kallkerfi, hátalara, hljóðnema og fleira.

Rýmið þitt á skilið hágæða hljóð

Genelec Smart IP hljóðlausn

Genelec Smart IP hljóðkerfi hentar fyrirtækjum og stofnunum sem gera kröfu um skýran, jafnan og áreiðanlegan hljóðflutning. Smart IP tæknin býður upp á sveigjanleika í fjölbreyttum rýmum eins og fundar- og ráðstefnurýmum, menntastofnunum, móttökum, verslunum og opnum svæðum þar sem jöfn dreifing hljóðs skiptir sköpum fyrir upplifun og skilvirkni. Búnaðurinn er hannaður til að endast og styðja við hagkvæman langtímarekstur.

Hljóð- og myndlausnateymi Ofar sér um allt frá þarfagreiningu, ráðgjöf og hönnun til uppsetningar, samþættingar og stuðnings. Niðurstaðan er stöðug lausn sem einfaldar rekstur, eykur notagildi rýmis og tryggir faglegt heildaryfirbragð í daglegri notkun.

myndskreyting

Hljóð sem fyllir rýmið

BOSE Professional

Upplifðu skýran og kraftmikinn hljóm með Bose Professional. Lausnirnar sameina vandaða hönnun, framúrskarandi hljómgæði og einfalda uppsetningu, hvort sem þörf er á utanáliggjandi eða innfelldum hátölurum.

Hljóðlausnirnar eru hannaðar til að móta upplifun fólks í rýmum þar sem afköst og samspil skipta máli. Með djúpri tæknilegri þekkingu og skýrum tilgangi styðja kerfin rekstur án þess að flækja hann og eru þróuð með heildræna notkun í huga fyrir áreiðanlegan daglegan rekstur.

Bose Professional

Hljóðlausnir með reynslu

Yamaha

Yamaha er eitt traustasta nafnið í hljóðheiminum þar sem áratuga reynsla mætir nýsköpun og fjölbreyttum lausnum fyrir bæði fagfólk og áhugafólk.

  • Yamaha hátalarar skila hreinu, jafnvægi og kraftmiklu hljóði sem hentar jafnt í stúdíóvinnu, tónlistarhlustun og heimabíó. Nákvæmni og áreiðanleiki eru í fyrirrúmi.

  • Yamaha magnarar færa þér stöðugan kraft og hljómgæði sem halda smáatriðum tónlistarinnar lifandi.

  • Yamaha er leiðandi í hljóðstýringum og mixerum sem eru þekktir fyrir einfalt notendaviðmót, sveigjanleika og mikla endingu.

  • Hljóðkort frá Yamaha tryggja nákvæma og stöðuga hljóðvinnslu. Kjörið fyrir upptökur, framleiðslu og streymi.

myndskreyting

Hljóðlausnir byggðar fyrir frammistöðu

Biamp

Biamp er leiðandi framleiðandi á hljóðkerfi og hljóðstýringar fyrir sali, fundarherbergi og önnur opinber rými. Lausnir frá Biamp sameina framúrskarandi hljóðgæði, einfaldleika í notkun og áreiðanlega tækni sem bætir samskipti og upplifun notenda. Með áherslu á nýsköpun hjálpar Biamp fyrirtækjum og stofnunum að skapa skilvirkara og notendavænna umhverfi

Biamp býður upp á fjölbreytt vöruúrval sem spannar meðal annars DSP hljóðstýringar, hátalara, magnara, fjarfundabúnað, stjórnbúnað og snjallar AV lausnir. Með áherslu á framúrskarandi hljóðgæði, áreiðanleika og notendavæna hönnun hjálpar Biamp fyrirtækjum og stofnunum að skapa skilvirkt og nútímalegt samskiptaumhverfi.

myndskreyting

Fyrir hina allra kröfuhörðustu

L‑Acoustics

L-Acoustics hljómgæði í hæsta gæðaflokki —lausnir sem eru hannaðar fyrir þau sem sætta sig ekki við málamiðlanir. Fyrsta val fagfólks um allan heim þegar kemur að tónleikum, viðburðum og uppsetningum þar sem áreiðanleiki og nákvæmni skipta öllu. Kerfin skila kraftmiklu, jafndreifðu hljóði með ótrúlegum skýrleika, hvort sem um er að ræða stórar sviðsuppsetningar eða krefjandi rými.

Fyrir heimilið: Með L-Acoustics færirðu sömu hágæða hljóðupplifun inn í stofuna. Heimakerfin sameina fágaða hönnun og einstaka hljómgæði sem umbreyta kvikmyndum, tónlist og leikjum í raunverulega upplifun.

Settu þig í samband við söluráðgjafa okkar til að uppgötva töfra L-Acoustics

myndskreyting

Nákvæmni í hverju hljóði

Audio-Technica

Audio-Technica er þekkt fyrir framúrskarandi hljóðbúnað sem sameinar nákvæmni, áreiðanleika og fágaða hönnun, fyrir bæði fagfólk og kröfuharða notendur.

Hljóðnemar: Skýr og náttúrulegur hljómur með mikilli endingu. Henta fyrir upptökur, podcast og sviðsnotkun þar sem hvert smáatriði skiptir máli.

Þráðlaus kerfi: Stöðug og truflanalaus tenging sem gefur frelsi í hreyfingu—fullkomið fyrir kynningar og viðburði.

Heyrnatól: Frábær hljómgæði, þægindi og ending. Henta jafnt í vinnu og tónlistarhlustun

Audio-Technica

Hljóðkerfi sem breyta rými í upplifun

Sérfræðiþjónusta

Sérfræðingar okkar geta hjálpað þér að finna réttu lausnina, hvort sem það felur í sér val og hönnun á hljóðkerfum, uppsetningu og uppfærslur á núverandi kerfum, viðhald, eða sérhannaðar lausnir fyrir sérstakar aðstæður eða óhefðbundin verkefni.

Hvort sem þú ert að leita að lausnum fyrir stór eða smá verkefni, þá erum við hér til að hjálpa þér að ná árangri.

Þjónusta í efsta stigi

Hvaða vandamál leysa góðar hljóðlausnir?

    Nýjustu fréttir og fróðleikur

    Ráðgjöf

    Við hjálpum þér að finna rétta lausn

    Sendu inn fyrirspurn og fáðu faglega ráðgjöf um hljóð- og myndlausnir. Við höfum samband og förum yfir þínar þarfir án skuldbindingar.