Afritunarlausnir

Eitt mikilvægasta atriðið í rekstri upplýsingakerfa er afritun gagna. Ef eitthvað fer úrskeiðis er nauðsynlegt að geta endurheimt gögn sem glatast eða skemmast.

Myndskreyting

Verndaðu. Greindu. Endurheimtu.

IBM afritunarlausnir

IBM Storage Protect

Rótgróin og áreiðanleg lausn fyrir afritun og endurheimt í fyrirtækjum. Styður netþjóna, sýndarvélar, gagnagrunna og ský. Miðlæg stjórnun, skilgreindar reglur og hagkvæm gagnavistun gera hana að traustum grunni fyrir daglega gagnavernd.

IBM Storage Defender Data Protect

Nútímaleg afritunarlausn með innbyggðu netöryggi. Sameinar afritun, ógnargreiningu og hraða endurheimt í einu stjórnborði. Hentar sérstaklega vel fyrir hybrid- og skýjaumhverfi þar sem öryggi og viðbragðshraði skipta sköpum.

IBM Storage Defender Sentinel

Greinir ransomware og aðrar ógnir með því að skoða afrit og finna frávik. Hjálpar til við að velja örugg endurheimtarpunkt og flýtir fyrir endurheimt eftir árás. Bætir auknu öryggislagi ofan á hefðbundna afritun.

IBM Copy Data Manager

Heldur utan um öll gagnaafrit og sjálfvirknivæðir ferla eins og snapshot, klón og speglun. Veitir yfirsýn og einfaldar aðgengi að afritum fyrir rekstur, þróun og prófanir. Minnkar flækjustig og sparar geymslurými.

IBM Storage Archive

Einföld og hagkvæm lausn fyrir langtímageymslu á segulböndum. Byggir á LTFS staðli sem gerir gögn aðgengileg eins og á diskum. Hentar vel fyrir köld gögn, reglugerðarkröfur og langtímavarðveislu.

Synology

Verndaðu gögnin með Synology ActiveProtect

Fullbúin afritunarlausn fyrir m.a afritun á Office 365 umhverfum. Engin leyfisgjöld.

myndskreyting

Ráðgjöf

Vantar þig ráðgjöf?