Öruggar netlausnir fyrir fyrirtæki
Við erum leiðandi í ráðgjöf, hönnun, innleiðingu og þjónustu á netlausnum fyrir fyrirtæki og stofnanir. Við hjálpum viðskiptavinum að byggja upp örugga, afkastamikla netinnviði.

HPE
Nýttu kraft gervigreindar í netinnviðum fyrirtækisins
HPE Juniper Networking (áður Juniper Network) nýtir gervigreind til að einfalda stjórnun netinnviða og bæta upplifun notenda.
Lausnaframboðið nær yfir þráðlaus fyrirtækjanet, Wi-Fi, netskiptara, beina, WAN, SD-WAN, SASE, netöryggi, aðgangsstýringu og gagnaverslausnir með Apstra, Mist AI og AIOps.

HPE
Af hverju HPE Juniper Networking?
HPE Juniper Networking er í fararbroddi þegar kemur að gervigreindardrifnum netlausnum.
Með Mist AI og Marvis AI verður gervigreind hluti af daglegri stjórnun netinnviða og hjálpar fyrirtækjum að greina vandamál hraðar, sjálfvirknivæða endurtekin verkefni og bæta upplifun notenda.
Lausnin fylgist stöðugt með upplifun notenda og virkni neta. Kerfið finnur rót vandamála, leggur til úrbætur og getur með heimild frá netstjóra framkvæmt valdar leiðréttingar sjálfvirkt.

HPE
Flaggskip HPE Juniper Networking
Mist AI
Greinir notendaupplifun í rauntíma og einfaldar stjórnun netinnviða með gervigreind.
Marvis AI
Gervigreindardrifinn aðstoðarmaður sem flýtir bilanagreiningu og leggur til úrbætur.
Apstra
Sjálfvirk stjórnun gagnaversneta sem einfaldar rekstur og dregur úr flækjustigi.

HPE
Fyrir hvern?
Lítil og meðalstór fyrirtæk
Öruggt fyrirtækjanet sem vex með rekstrinum.
Stærri fyrirtæki
Miðlæg stjórnun LAN, Wi-Fi og WAN yfir margar starfsstöðvar.
Opinberir aðilar
Áreiðanlegar lausnir fyrir skóla, stofnanir og heilbrigðisþjónustu.
Gagnaver og þjónustuveitur
Sjálfvirkni og afköst fyrir krefjandi netumhverfi.
Fortinet
Samþætt netöryggi í efsta stigi
Verndaðu fyrirtækið með samþættum netöryggislausnum. Fortinet sameinar net, öryggi og stjórnun í eina heildstæða lausn.
Lausnaframboðið nær yfir eldveggi, SD-WAN, SASE, aðgangsstýringu, endabúnaðarvarnir, skýjaöryggi og miðlæga öryggisstjórnun sem styrkir varnir fyrirtækisins og einfaldar reksturinn.

Fortinet
Af hverju Fortinet?
Fortinet Security Fabric tengir saman net, öryggi og stjórnun þannig að eldveggir, netskiptar, þráðlaus net, endabúnaður og skýjaþjónustur vinna saman og deila upplýsingum um ógnir í rauntíma.
Með FortiOS er hægt að stjórna öllu umhverfinu á einum stað, á meðan FortiGuard Labs uppfæra varnir stöðugt út frá nýjustu ógnargreiningum á heimsvísu.
Fortinet
Flaggskip Fortinet
FortiGate
Næstu kynslóðar eldveggur með VPN, SD-WAN og háþróuðum ógnavörnum.
Fortinet Security Fabric
Samþættur vettvangur sem sameinar net og öryggi í eina heild.
FortiOS
Sameiginlegt stýrikerfi sem einfaldar stjórnun og samræmir öryggisreglur.

Fortinet
Fyrir hvern
Lítil og meðalstór fyrirtæki
Einfaldara netöryggi í einni lausn.
Stærri fyrirtæki
Miðlæg stjórnun og yfirsýn yfir allt netumhverfið.
Opinberir aðilar
Sterkari vernd mikilvægra kerfa og gagna.
Gagnaver og þjónustuveitur
Skalanlegar öryggislausnir fyrir flókin umhverfi.
OpenGear
Örugg stjórnun netinnviða
Opengear veitir öruggar lausnir fyrir utanbandsstýringu (Out-of-Band Management) sem gera fyrirtækjum kleift að stjórna og endurheimta netinnviði, jafnvel þegar hefðbundið net er niðri.
Lausnirnar tryggja öruggan fjaraðgang að mikilvægum búnaði, stytta niðurtíma, flýta bilanagreiningu og draga úr dýrum útköllum.
Með miðlægri stjórnun, sjálfvirkni og varatengingum hjálpar OpenGear fyrirtækjum að halda rekstrinum gangandi þegar mest á reynir.

Cisco
Traustar netlausnir fyrir fyrirtæki af öllum stærðum
Cisco býður fjölbreytt úrval netlausna sem henta jafnt litlum fyrirtækjum sem stórum netum með mörgum starfsstöðvum.
Með lausnum á borð við Cisco Catalyst, Cisco Meraki og Cisco SD-WAN geta fyrirtæki byggt upp örugg, skalanleg og afkastamikil net með einfaldri stjórnun og áreiðanlegum tengingum.

Nýjustu fréttir og fróðleikur

Ráðgjöf
Vantar þig ráðgjöf?
Hjá Ofar færðu sérfræðiráðgjöf, leiðandi lausnir og staðbundna þjónustu sem fylgir verkefninu alla leið – frá greiningu og hönnun til innleiðingar, uppsetningar og áframhaldandi stuðnings.