Kvikmynda- og ljósvakalausnir
Við erum leiðandi á íslenskum markaði í sölu, ráðgjöf og þjónustu á búnaði frá Blackmagic Design, Canon, Sony og fleiri frábærum vörumerkjum fyrir kvikmynda og sjónvarpsgeirann.

Stoltir samstarfsaðilar
Framúrskarandi þjónusta, sérfræðiþekking og áreiðanleiki
Við bjóðum upp á heildarlausnir sem eru sérsniðnar að þörfum hvers og eins, með það að markmiði að tryggja að hver framleiðsla nái hámarksárangri. Við erum stolt af því að veita vandaða tæknilega aðstoð og ráðgjöf, sem auðveldar viðskiptavinum okkar að nýta sér nýjustu tækni og búnað á sem bestan hátt.
Viðskiptavinir okkar spanna allan skalann í bransanum, m.a. RÚV, SÝN, Síminn, KUKL, Saga Film, Trickshot, sjálfstæðir framleiðendur sjónvarps- og kvikmyndaefnis auk skóla, einka- og ríkisfyrirtækja.

Broadcasting-vélar fyrir fagfólk í beinni útsendingu
Hjá Ofar færð þú öflugar og hagkvæmar upptökuvélar frá leiðandi framleiðendum á borð við Blackmagic Design, Canon og Sony sem henta jafnt í beinar útsendingar, fréttavinnslu, íþróttir og viðburði. Vélarnar eru hannaðar fyrir lágseinkunartengingar, langa vinnudaga og litastýringu í rauntíma, svo þú getir treyst á samræmd gæði frá upptöku til útsending.
Vélarnar sameina áreiðanleika, framúrskarandi myndgæði og skilvirkt vinnuflæði, með stuðningi við SDI/IP, fjarstýringu, tally og talkback. Hvort sem um er að ræða fjölmyndavélakerfi, færri uppsetningar eða stórar framleiðslur.

Blackmagic Design
Íslenskt landslag mætir URSA
Í myndbandinu hér fylgjumst við með franska kvikmyndatökumanninum Florent Piovesan við tökur á Íslandi með Blackmagic URSA Cine 17K 65 – nýjustu kvikmyndavél Blackmagic Design, hönnuð fyrir metnaðarfullar kvikmyndir og sjónvarpsframleiðslu. Í verkefni Florent Piovesan var markmiðið skýrt: að sýna landslagið nákvæmlega eins og það er – með réttri vídd, dýpt og tilfinningu.
0:00
0:00
Fréttir af kvikmynda- og ljósvakalausnum








