Af hverju virkar skönnun í tölvupóst ekki lengur sjálfkrafa?
Microsoft, Google og aðrir póstþjónustuaðilar hafa hert verulega á öryggisreglum undanfarin misseri. Í dag eru póstsendingar úr prenttækjum oft stöðvaðar nema rétt auðkenning og stillingar séu til staðar.
Þetta kemur sérstaklega fram í:
skönnun í tölvupóst (Scan to Email)
eldri prenttækjum eða uppsetningum
umhverfum þar sem enginn sér notandi er skilgreindur
Afleiðingin er sú að skönnuð skjöl skila sér ekki eða virkni dettur reglulega út.

Svona tryggjum við áreiðanlega skönnun
Yfirsýn á kerfum
Við greinum hvaða póstþjónusta, prenttæki og notkunarmynstur eru til staðar.
Val á réttri lausn
Valið fer eftir öryggiskröfum, fjölda notenda og því hvert skjölin eiga að fara.
Uppsetning og prófanir
Tæknimenn Ofar sjá um stillingar, prófa virkni og tryggja stöðugleika.
Leiðbeiningar
Helstu leiðir til skönnunar úr prenttækjum
Póstþjónusta í Office 365
Haft er samband við kerfisstjóra eða þjónustuaðila sem sér um póstmál fyrirtækisins og óskað eftir að stofnaður sé sérstakur „scan“ notandi.
Tæknimenn Ofar geta aðstoðað við uppsetningu og stillingar á prenttæki.
Póstþjónusta í Gmail
Stofna þarf sérstakan „scan“ notanda.
Virkja þarf tvíþætta auðkenningu (2FA).
Búa þarf til sérstakt „app password“ fyrir prenttækið.
Tæknimenn Ofar geta aðstoðað við uppsetningu og stillingar á tæki.
Cloud Connector (Canon)
Á nýrri prenttækjum frá Canon er í boði svokallaður Cloud Connector sem setur upp örugga tengingu við skýjaþjónustu og sér um að senda skönnuð skjöl áfram.
Einnig er hægt að kaupa viðbótarleyfi sem gerir kleift að skanna beint í þjónustur á borð við OneDrive, Google Drive og SharePoint.
Fyrir nánari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við prentlausnir@ofar.is
Skönnun í möppu (Scan to Folder)
Hægt er að setja upp skönnun beint í möppu á tölvu eða á sameiginlegu netdrifi fyrirtækis.
Tæknimenn Ofar geta aðstoðað við uppsetningu og stillingar.
Skönnun á USB-lykil
Hægt er að skanna beint á USB-lykil úr prenttæki.
Tæknimenn Ofar geta aðstoðað við að virkja og stilla þá virkni.

Ráðgjöf
Við finnum lausn sem hentar þér
Við bjóðum ráðgjöf án skuldbindinga. Heyrðu í okkur og við finnum lausnir sem spara tíma, fyrirhöfn og kostnað.
