Lenovo ADP1 tjónavernd

Nú er hægt að kaupa sérstaka tjónavernd á Lenovo tölvubúnaði fyrir fyrirtæki og stofnanir. Ef óhapp verður – láttu okkur sjá um vesenið, svo þú getir nýtt tímann þinn í það sem skiptir máli. 

Myndskreyting

Ofarlíf

Hvernig virkar þetta?

Lenovo ADP1 tjónavernd bætir beint tjón af völdum skyndilegs og ófyrirsjáanlegs utanaðkomandi atviks s.s. vatnstjóns eða óhapps. Sömuleiðis bætir ábyrgðin beint tjón af völdum innri bilunar.  

Ábyrgðin er ekki með neina eigin áhættu og gildir á Íslandi. Ef til tjóns kemur þá mun það ekki hafa áhrif á þau kjör hjá þínu tryggingafélagi. 

Við lögum tækið eða skiptum því út svo framarlega að tjón sé innan skilmála ábyrgðar. Við tjón fellur ábyrgð niður og bætir því ekki frekari tjón á tækinu. 

myndskreyting

Óhappaleysi

Hvernig kaupi ég Lenovo tjónavernd?

Mælst er til þess að kaupa Lenovo ADP1 tjónavernd þegar tæki er keypt. Hinsvegar er hægt að bæta tjónavernd við kaupin í allt að 30 daga frá kaupdagsetningu með þeim fyrirvara að tæknimaður Ofar meti hvort tækið sé í lagi hafi innsigli verið rofið eða tækið tekið í notkun

myndskreyting

Hvað bætir Lenovo ADP1 tjónavernd

  • Vökvaskemmdir á lyklaborði
  • Bilanir af völdum spennupúls sem skemma rafrásir  
  • Skemmdir á LCD skjá
  • Óviljandi höggskemmdir eða fall tækis úr hæð sem er ekki hærri en 5 metrar

Hvað bætir Lenovo ADP1 tjónavernd ekki?

  • Kröfur um skaðabætur frá þriðja aðila.

  • Tap eða skemmdir á gögnum eða hugbúnaði. 

  • Sérstök, tilfallandi, viljandi eða óbein tjón þ.m.t., en ekki takmarkað við tap eða minnkun á hagnaði, tekjum, viðskiptavild eða fyrirhuguðum sparnað hjá viðskiptavin.

  • Bilanir eða skemmdir af völdum misnotkunar, breytinga eða aukahluta.

  • Minniháttar útlitsskemmdir sem hafa ekki áhrif á virkni tækis. 

Undir engum kringumstæðum skal ábyrgð tjónavernd bera hærri kostnað en kostnaður viðgerðar eða söluverð tækis.

myndskreyting

Mikilvægar upplýsingar

Hvað geri ég ef ég lendi í tjóni?

Þú hefur samband við þjónustusvið Ofar sem annast viðgerðarþjónustu og ábyrgðarmál.

Þjónustusvið okkar að Köllunarklettsvegi 8 er opið alla virka daga frá kl. 9 – 17. Sími 516-1900.  

Hvar gildir Lenovo ADP1 tjónavernd?

Tjónavernd gildir á Íslandi. 

Hverjar eru mínar skyldur?

Ef upp kemur tjón sem fellur undir skilmála þarf viðskiptavinur að tilkynna tjónið til Ofar án tafar og áður en ábyrgðartímabil rennur út.

Ofar getur ekki borið ábyrgð á tjónavernd sem rennur út áður en tjón er tilkynnt. 

Hvað gildir tjónavernd lengi?

Hægt að kaupa ADP1 tjónavernd frá 1 ári og upp í 4 ár. Hægt er að kaupa takmarkaða vernd upp að 5 árum. 

Einnig er í boði að framlengja ábyrgð á tæki áður en grunnábyrgð rennur út. 

Hvernig segi ég tjónaverndinni upp?

Tjónavernd er keypt fyrir tiltekið tímabil og ekki er hægt að segja henni upp. 

Tjónavernd fellur sjálfkrafa niður við lok ábyrgðartímabils eða þegar Ofar hefur fullnægt skyldum sínum með því að greiða bætur fyrir tjón. 

Hver er munurinn á Lenovo ADP1 tjónavernd og Tækjatryggingu Ofar?

ADP1 tjónavernd á Lenovo tölvubúnaði er á vegum Lenovo og tekur ekki á þjófnaði eða tjóns sem 3. aðili veldur, gilda aðeins á Íslandi og takmarkast við eitt tjón. ADP1 tjónavernd er hugsuð fyrst og fremst fyrir fyrirtæki og stofnanir.  

Tækjatrygging Ofar er frábær kostur fyrir einstaklinga og einyrkja sem vilja heildarvörn ásamt ferðatryggingu. 

Fyrirspurn

Viltu kaupa tjónavernd eða fá meiri upplýsingar?