Gagnvirkir kennsluskjáir: Tækni sem nær til nemenda

Komdu á fræðandi fyrirlestra og sýnikennslu um nýjustu tækni í kennsluskjám fyrir skólastjórnendur og kennara.

16/9/2025
14:00 - 16:00
Borgartún 37
Ókeypis en nauðsynlegt að skrá sig

Þann 16. september 2025 bjóðum við á spennandi viðburð og vörusýningu með áherslu á nýjustu tækni í gagnvirkum kennsluskjám.

Christian Høgh frá Promethean kemur til landsins og kynnir fyrir okkur möguleikana sem sérhannaðir kennsluskjáir þeirra bjóða upp á, hvernig þeir styðja kennara í daglegu starfi og virkja þátttöku nemenda.

Kennarar úr Fjölbrautaskólanum í Breiðholti deila reynslu sinni af notkun Promethean skjáanna, áhrifum þeirra á samvinnu og virkni í kennslu.

Öll velkomin & léttar veitingar

Viðburðurinn er ætlaður öllum sem vilja efla kennslu með nýjustu tækni og fá innblástur frá öðrum í skólasamfélaginu. Léttar veitingar í boði fyrir gesti og sérfræðingar Ofar verða á staðnum til að svara spurningum og veita ráðgjöf.

segðu frá

Dagskrá

KL 14:00 -14:30

Húsið opnar og kennsluskjáir til sýnis

KL 14:30 -14:45

Velkomin

Ágúst Þór Gylfason, Vörustjóri Promethean

KL 14:45 -15:15

Empowering teachers and engaging students

Christian Høgh

KL 15:15 -15:30

Hvað hefur tæknin gert fyrir kennsluna

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti

KL 15:30 -16:00

Sýnikennsla og umræða

Fyrirlesarar

Christian Høgh

Business Development & Channel Executive / Northern & Eastern Europe, Promethean

Christian Høgh hefur yfir 15 ára reynslu af menntatækni ásamt bakgrunni sem kennari. Hann sameinar einstaka innsýn í kennslufræði og tæknilega sérþekkingu í öllu starfi sínu. Christian er reynslumikill fyrirlesari, þekktur fyrir innblásna og hvetjandi þjálfun. Hann hefur brennandi áhuga á því hvernig tæknin getur eflt nám og kennslu og mun deila innsýn sinni með gestum.

Fb

Kennarar

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti hefur lengi verið framsækinn í innleiðingu nýrrar menntatækni. Skólinn hefur áratuga reynslu af því að tengja saman hefðbundnar kennsluaðferðir og nýstárlegar lausnir til að styðja nám og kennslu. Með notkun gagnvirkra kennsluskjáa og annarrar stafrænnar tækni leggja kennarar áherslu á að auka aðgengi að námi, efla þátttöku nemenda og skapa sveigjanlegra kennsluumhverfi.