Konur í ljósmyndun

Velkomin á viðburð Canon á Íslandi þar sem við fáum Önnu Maggý og Iiris Sjöblad til halda erindi um störf sín í heimi ljósmyndunar.

8/3/2024
16:30 - 19:00
Origo, Borgartún 37
Happy Hour með konum í ljósmyndun.

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er haldinn föstudaginn 8. mars og af því tilefni bjóða Canon og Origo lausnir þér í veislu og innblástur með erindi frá afar áhugaverðum konum í ljósmyndun, vídeó og list.

Viðburðurinn er haldinn í Origo, Borgartúni 37. Húsið opnar klukkan 16.30 þar sem boðið verður upp á léttar veitingar en fyrirlestrar hefjast klukkan 17:00.

Ókeypis er á viðburðinn sem er að sjálfsögðu fyrir öll kyn en nauðsynlegt er að skrá sig.

Dæmi um verkDæmi um verk
Dagskrá:
  • 16:30
    Húsið opnar og léttar veitingar.

  • Anna Maggý
    Sjálfstætt starfandi ljósmyndari.

  • Hlé

  • Iiris Sjöblad
    Sjálfstætt starfandi kvikmyndagerðarkona og ljósmyndari.

  • Léttar veitingar og spjall

Við látum þig vita

Það er fullt á þennan viðburð

Skráðu þig á póstlistann og við látum þig vita þegar eitthvað nýtt eða spennandi er að gerast hjá okkur.

Skrá mig á póstlistann
postlisti

Iiris Sjöblad

Sjálfstætt starfandi kvikmyndagerðarkona og ljósmyndari

Iiris Sjöblad er sjálfstætt starfandi kvikmyndagerðarkona og ljósmyndari sem býr í Helsinki í Finnlandi. Hún starfar sem leikstjóri og kvikmyndatökumaður og hefur tekið og leikstýrt heimildarmyndum, stuttum skáldskap og auglýsingamyndum. Ljósmyndaverk hennar hafa meðal annars falið í sér portrettmyndir af frægu fólki, blaðamennsku, auglýsingar og persónuleg verkefni með áherslu á þætti náttúrunnar. Iiris hefur starfað fyrir ýmsa stóra viðskiptavini - þar á meðal alþjóðlegu barnahjálparsamtökin Plan International og Helsingin Sanomat, stærsta og þekktasta dagblað Finnlands.

Anna Maggý

Sjálfstætt starfandi ljósmyndari

Anna Maggý notast aðallega við ljósmyndun við gerð verka sinna en einnig aðra miðla á borð við innsetningar og myndbönd. Lýsa má verkum hennar sem tilfinningalegu landslagi - skráargötum sjónræns töfraraunsæis sem áhorfandinn ber lykil að. Anna Maggý leitast við að flytja boð milli raunveruleika og drauma, umhverfis og ímyndunar, skoða mörk milli ytra yfirborðs og undirmeðvitundar. Ljósmyndir Önnu Maggýjar hafa birst í alþjóðlegum tímaritum eins og Vogue Italia, British Vogue, Dazed and Confused og I-D Magazine.