IBM FlashSystem 5600

Prófaðu í þínu eigin umhverfi í tvær vikur.

Myndskreyting

99,9999% uppitími

Aðgangur að gögnum skiptir sköpum fyrir reksturinn og niðritími getur verið kostnaðarsamur. IBM FlashSystem 5600 með Spectrum Virtualize býður allt að 99,9999% uppitíma, viðhald án niðritíma og IBM Storage Intelligence control sem fylgist stöðugt með búnaðinum.

FlashSystem 5600 tekur við af FlashSystem 5300 og byggir á NVMe-tækni. Með PCIe Gen 4 og öflugri örgjörvum skilar kerfið allt að 50% meiri afköstum en FlashSystem 5300.

myndskreyting

Uppgötvar netárás á innan við mínútu

Með IBM FlashSystem 5600 voru kynntir nýir FlashCore Module-diskar (FCM5). Hver diskur er með eigin örgjörva sem sér um þjöppun gagna, deduplication og dulkóðun – og nú einnig „in-line threat detection“.

Það þýðir að hver skrift á disk er skoðuð með tilliti til mögulegrar gagnaárásar. Gervigreind er nýtt til að fylgjast með virkni diskanna og lýsigögn (metadata) eru send í IBM Storage Insights, þar sem þau eru greind nánar. Ef óeðlileg hegðun greinist fær viðskiptavinurinn aðvörun innan við mínútu.

myndskreyting

FlashSystem.ai einfaldar stjórnun og rekstur

FlashSystem.ai er gervigreindardrifinn aðstoðarmaður sem gerir stjórnendum kleift að stjórna IBM FlashSystem gagnageymslum með einföldum textafyrirmælum beint í stjórnviðmótinu.

Aðstoðarmaðurinn styður algeng verkefni, svo sem að búa til gagnasneiðar, hýsla og skyndiafrit, og framkvæmir aðeins aðgerðir eftir skýrt samþykki notanda.

FlashSystem.ai er settur upp sem container í eigin umhverfi fyrirtækisins og tryggir þannig að full stjórn haldist hjá fyrirtækinu.

myndskreyting

Prufuáskrift

Prófaðu frítt í tvær vikur

Ofar býður viðskiptavinum að prófa IBM FlashSystem 5600 í umhverfi sínu í 2 vikur (aðeins er greitt fyrir uppsetningu á gagnageymslunni). Gerð verður áætlun um tíma og markmið prófunar með mælanlegum gildum til þess að meta árangur prófunar. Ef að viðskiptavinur ákveður kaup á IBM FlashSystem eftir prófun þá verður ný diskastæða sett upp hjá viðskiptavini án endurgjalds.

(*) Verð eru miðuð við gengi 1 DKK = 18,81 ISK. Réttur áskilinn til verðbreytinga vegna gengisbreytinga. Fjármögnun er frá IBM Financing og er háð samþykki þeirra. 

(**) Mögulegt að bæta við 3ja eða 5 ára aukinni ábyrgð.