IBM FlashSystem Öflug vörn gegn gagnagíslatöku

Hraðvirkar, All-Flash og Hybrid gagnageymslulausnir. Hannaðar til að einfalda rekstur og styðja við nútímavæðingu upplýsingatækni.

Myndskreyting

Hentar fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum

Afhverju að velja IBM Flashsystem?

FlashSystem er öflug gagnageymslulausn með innbyggðum hugbúnaði fyrir speglun og gagnavörn. Lausnin ver fyrirtækið þitt gegn gagnagíslatöku með því að greina grunsamlega gagnavirkni á innan við mínútu.

Gagnageymslurnar eru fáanlegar í 1U–4U einingum í rekka og bjóða upp á hraðvirka diska, mikla orkunýtni og vistvænan rekstur. Lausnirnar eru með „on-drive“ þjöppun, dulkóðun og „deduplication“ sem hefur engin áhrif á afköst stýrieininga og þannig er hægt að ná hámarksafköstum án málamiðlana.

myndskreyting

Við endurnýjuðum innviðabúnað með Lenovo Thinksystem SR650 V3 netþjónum og IBM FlashSystem 5300 gagnastæðu. Tæknimenn Ofar veittu framúrskarandi þjónustu, sáu um uppsetningu og aðstoðuðu við flutning á innri kerfum á nýja búnaðinn.  Verkefnið gekk hnökralaust og í kjölfarið kom fyrirspurn frá bókhaldinu: „Hvað gerðist með Navision? Það virkar miklu hraðar núna.“ 

Magnús Bergmann Hallbjörnsson

Kerfisstjóri hjá Reykjanesbæ

Hvað gerir FlashSystem fyrir þinn rekstur? 

Uppgötvar netárás á innan við mínútu 

Flash Core Module diskar (FCM4) komu með sérhæfðum örgjörva sem sér um gagnaþjöppun, dulkóðun og og in-line threat detection. Það þýðir að hver skrift á disk er greind í rauntíma með tilliti til mögulegra gagnaárása. Nýjustu meðlimir FlashSystem línurnar koma með FCM5 sem bætir við „deduplication“ á gögnum án þess að hafa áhrif á afköst stýrieininganna.

Gervigreind er nýtt til að fylgjast með skrifum á diska og viðeigandi lýsigögn eru send í IBM Storage Insights skýjalausnina, þar sem gögnin eru greind nánar. Komi upp óeðlileg hegðun fær viðskiptavinur aðvörun innan við mínútu frá því að frávik greinist.

myndskreyting

Hvað gerir FlashSystem fyrir þinn rekstur? 

Skrifvarin skyndiafrit 

Í stafrænum heimi er verndun mikilvægra gagna fyrirtækja gegn ógnunum á borð við gagnagíslatöku, gagnaeyðingu og gagnaspillingu. IBM Safeguarded Copy, sem fylgir með IBM FlashSystem, býður upp á öfluga lausn sem býr til skrifvarin skyndiafrit sem hvorki er hægt að breyta né eyða.

Þetta tryggir að ávallt sé til staðar öruggt og sannprófað afrit sem hægt er að endurheimta hratt ef upp koma atvik eða hamfarir. Lausnin lágmarkar niðritíma og styður við órofa rekstur. Með því að nýta háþróaða tækni IBM fellur Safeguarded Copy áreynslulaust inn í núverandi innviði og bætir við mikilvægu varnarlagi sem veitir bæði öryggi og hugarró.

myndskreyting

Hvað gerir FlashSystem fyrir þinn rekstur? 

Speglun gagna og samræmd net (grid)

FlashSystem policy-based replication setur sjálfvirkt upp speglun gagna milli gagnageymslna samkvæmt skilgreindum reglum. Þetta einfaldar uppsetningu varakerfa og lausna með kröfur um háan uppitíma, svo sem fyrir disaster recovery og high availability (HA).

IBM FlashGrid tækni og nýjungar í policy-based High Availability gera viðskiptavinum kleift að tengja saman IBM FlashSystem gagnageymslur af ólíkri gerð í eitt samræmt net. Þannig er hægt að færa verkefni og vinnuálag milli gagnageymslna og gagnastæða án niðritíma og stjórna öllu frá einu sameiginlegu stjórnviðmóti.

IBM Storage Insights nýtir greiningu og gervigreind til að leggja til hvaða verkefni ætti að færa, og á hvaða gagnageymslu innan FlashGrid, til að jafna álag og hámarka afköst kerfa.

myndskreyting

Fjölbreytt vörulína

IBM FlashSystem 5015 

2-core örgjörvi og 64GB flýtiminni, og er mögulegt að tengja allt að 10 auka 2U diskaskúffur við eða 4 stykki af 5U skúffum eða allt að 392 diska. Frábær lausn fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.

IBM FlashSystem 5045

5045 SFF/LFF SAS diskastýrieiningar henta frá litlum upp í stór fyrirtæki og bjóða upp á mismunandi afköst, skalanleika og eiginleika. 2 x 6-core örgjörvar og allt að 64GB flýtiminni.

IBM FlashSystem C200  

Tvöföld stýrieining með 256 GB flýtiminni (samtals cache) og tekur 2U í 19 tommu rekka. Hentar fyrir vinnslur eins og video streaming, archiving eða afritun sem krefjast mikillar rýmdar, með góð afköst og á hagkvæmu verði per GB.  

IBM FlashSystem 9600

Frábær lausn fyrir meðalstór og stór fyrirtæki með blandaðar vinnslur og skilar gríðarlegum hraða og einfaldleika fyrir kröfuhörðustu fyrirtækjaumhverfi (50% afkastameiri en FS7600).

IBM FlashSystem 5600

FlashSystem 5600 er NVMe all-flash geymslulausn sem sameinar öflugt netöryggi, mikinn geymsluþéttleika og framúrskarandi afköst, allt að 2,6M IOPS. Lausnin hentar fjölbreyttum vinnsluþörfum þar sem krafa er um afköst, skalanleika og öryggi.

Kerfið styður allt að 12 EDSFF NVMe diska og býður allt að 633,6 TB af hráu geymslurými í aðeins 1U, sem tryggir mikla þéttleika og sveigjanleika. IBM FlashCore Modules eru fáanleg frá 6,6 TB upp í 52,8 TB, auk hefðbundinna NVMe SSD diska.

FCM einingarnar sjá um in-line þjöppun og tvítekningareyðingu (deduplication) án áhrifa á afköst, sem skilar betri nýtingu á geymslu og viðheldur lágri biðtöf

myndskreyting

IBM FlashSystem 7600

IBM FlashSystem 7600 er hagkvæm NVMe geymslulausn sem sameinar öflug afköst, sveigjanleika og öryggi. Hún styður alla helstu eiginleika FlashSystem línunnar og skilar allt að 4,3M IOPS (165% meiri afköst en FS5600).

Kerfið er 2U lausn sem hentar fyrirtækjum með miklar kröfur um afköst, áreiðanleika og stækkun. Með IBM Storage Virtualize og FlashCore Modules býður það upp á innbyggða þjöppun, deduplication og dulkóðun án þess að hafa áhrif á hraða eða einfaldleika.

myndskreyting

Ráðgjöf

Vantar þig ráðgjöf?