Smásölumiðlun í verslunum
Í dag er hægt að stýra verðmerkingum, tilboðum og markaðsefni á öllum sölustöðum frá einum stað í rauntíma. Hér eru lausnirnar sem gera það mögulegt.

Stafræn miðlun. Ein samþætt lausn.
Markaðsfletir í verslunum
Vusion Engage Rail
Lifandi kynningarefni
Rafpappír Mediaboard
Kynningarefni & verðmerkingar
Auglýsingaskjáir
Auglýsingar sem tala við kerfin
ESL
Rafrænar verðmerkingar
Rafrænir hillumiðar eru notaðir til að verðmerkja og veita nánari upplýsingar um vörur í verslunum. Verðmiðarnir uppfæra verðbreytingar sjálfkrafa í gegnum fjárhagskerfi verslunarinnar og með því sparast mikill tími við verðlagningu sem og að virkja inn afslætti með stuttum fyrirvara.
Umbreyttu versluninni í miðil sem skilar árangri
Markvissari og áhrifaríkari markaðssetning
Rétt skilaboð birtast á réttum stað og tíma, þar sem kaupákvörðun er tekin. Þetta vekur meiri athygli, sterkari vörumerkjavitund og betri árangri herferða.
Auknar tekjur og sala
Stafrænir miðlar í verslun opna nýjan tekjustraum í gegnum auglýsingapláss og samstarf við birgja. Á sama tíma eykst sala með markvissari herferðum og auknum áhrifum á kauphegðun.
Gögn í rauntíma, mælanleiki og yfirsýn
Þú færð raunveruleg gögn um hvað virkar og hversu miklu það skilar. Þú færð innsýn í kauphegðun, getur mælt árangur og tekið upplýstar ákvarðanir í rauntíma.
Skilvirkari rekstur og minni handavinna
Miðlæg stýring á markaðsefni og markaðsherferðum einfaldar rekstur og dregur verulega úr handavinnu. Starfsfólk fær meira svigrúm til að einbeita sér að þjónustu og verðmætasköpun.
Hraði og sveigjanleiki í rekstri
Auðvelt að bregðast samstundis við hvers kyns breytingum hvort sem það snýr að verði, lagerstöðu eða kynningarefni.
Bætt upplifun viðskiptavina
Verslunin hættir að vera kyrrstætt sölurými og verður virkur samskiptamiðill. Hún tengir saman vörumerki og viðskiptavini í kauphugleiðingum og skapar fleiri snertifleti og betri upplifun.
Frá ráðgjöf að innleiðingu
- Ráðgjöf
- Þarfagreining
- Uppsetning
- Verkefnastýring
- Innleiðing og kennsla
- Eftirfylgni og árangursmat

Ráðgjöf
Við finnum lausn sem hentar þér
Við bjóðum ráðgjöf án skuldbindinga. Láttu okkur vita hvað þú þarft og við finnum lausn sem sparar tíma, fyrirhöfn og kostnað.